
Manchester United er sagt hafa áhuga á Jarrod Bowen, fyrirliða West Ham, fyrir sumargluggann.
Samkvæmt The Guardian fylgist United grannt með stöðu mála hjá West Ham, sem gæti þurft að selja leikmenn ef félagið fellur úr úrvalsdeildinni. Liverpool og Chelsea eru einnig sögð hafa áhuga á Englendingnum.
Bowen hefur verið lykilmaður hjá West Ham undanfarin ár. Hann er fjölhæfur og afar vinnusamur.
„Ég sest alltaf niður eftir hvert tímabil og hugsa hvað sé best fyrir mig og hvað innsæið segir mér,“ sagði Bowen um framtíð sína á dögunum.
West Ham er með bakið upp við vegg fyrir lokaumferðina í úrvalsdeildinni. Liðið þarf að vinna sinn leik gegn Leeds og treysta á tap Tottenham gegn Everton til að halda sér uppi.