
16-liða úrslitum á Heimsmeistaramótinu lauk í dag með tveimur leikjum. Það er því ljóst hvernig 8-liða úrslitin líta út.
Snemma í morgun vann Kólumbía 1-0 sigur á Jamaíka. Eina mark leiksins skoraði Catalina Usme snemma í seinni hálfleik.
Frakkland vann þá þægilegan sigur á Marokkó. Eugenie Le Sommer skoraði tvö mörk Frakka í leiknum.
Kólumbía 1-0 Jamaíka
1-0 Catalina Usme 51′
Frakkland 4-0 Marokkó
1-0 Kadidiatou Diani 15′
2-0 Kenza Dali 20′
3-0 Eugenie Le Sommer 23′
4-0 Eugenie Le Sommer 71′
8-liða úrslit
Spánn – Holland (11. ágúst)
Japan – Svíþjóð (11. ágúst)
Ástralía – Frakkland (12. ágúst)
England – Kólumbía (12. ágúst)