fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Guðmundur Felix ætlar sér aftur á vinnumarkað: „Það eru blendnar tilfinningar, það er ótti þegar maður er búinn að vera hálfónýtur öll þessi ár“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. júní 2026 09:00

Guðmundur Felix Grétarson Mynd: Brynjar Snær Þrastarson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég var að eignast nýtt afabarn, dóttir mín sem býr í Þýskalandi eignaðist dóttur fyrir nokkrum dögum. Hún fæddist tæpum mánuði fyrir tímann og þau eru að venja sig við þetta allt saman,“

segir Guðmundur Felix Grétarsson, handlangarinn í viðtali við Bítið á Bylgjunni í morgun. Aðspurður sagðist hann ekki búinn að hitta nýja afabarnið, en myndu kíkja í heimsókn síðar í sumar.

Guðmundur, sem er búsettur í Frakklandi, ræddi stöðuna á handleggjunum og lífinu. Í desember fékk hann nýja mjöðm og nú vinnur hann að því að stofna nýtt fyrirtæki. Guðmundur er ekki kominn á vinnumarkaðinn aftur.

„Það eru blendnar tilfinningar, það er ótti þegar maður er búinn að vera hálfónýtur öll þessi ár. En það er líka rosa spenna og gaman að sjá hvort þetta gangi upp. Lagaumhverfið hér er öðruvísi og auðvitað allt á frönsku. Ég útskrifast 1997 og þetta er breytt umhverfi, en ég er bara á fullu að reyna að læra og feta mig áfram í þessu.“

Aðspurður um hvort hann hefði getað séð fyrir sér hvernig handaígræðslan gengi upp og það sem við tók í framhaldinu svarar Guðmundur neitandi.

„Ég var alltaf að vonast eftir góðum árangri, ég vonaðist eftir fullkomnum höndum, en þeir sem gerðu aðgerðina héldu mér á jörðinni. Þetta fór fram úr björtustu vonum miðað við það sem mér var lofað. Þegar ég var samþykktur á listann bjuggust þeir ekki við miklu. Úrslitaniðurstaðan var sú að ég hafði fengið lifrarskipti og var því á þessum lyfjum áður. 

Og er ástæðan fyrir að ég er að reyna að koma mér aftur út á vinnumarkað, í það fag sem ég lærði upphaflega, rafvirkjun, og það væri ekki mögulegt án þessara aðgerða.“

Andlega hliðin skiptir miklu máli

Aðspurður um hvort hann gæti hjálpað fólki í sömu stöðu með andlegu hliðina, segir Guðmundur hana skipta miklu máli.

„Það skiptir miklu máli að sá sem fer í gegnum svona hafi gott stuðningsnet, þeir samþykkja þig ekki nema grunnurinn sé í lagi. Þetta er mjög erfitt og það hafa verið ofboðslega erfiðir kaflar, til dæmis 2023 þá hafnaði ég handleggjunum í mars eða apríl og við náðum ekki tökum á því fyrr en í desember.“

Guðmundur segist fyrst núna, fimm árum eftir aðgerð, sjá æðarnar í handleggjum sér. Hann segir sjúkrahúsið þar sem aðgerðin fór fram gefa fólki í hans stöðu sama lyf og honum var gefið með von um betri horfur þeirra einstaklinga.

„Ég er að læra að nota betur það sem ég hef og venjast hvernig hendurnar eru. Síðasta ár var mjög erfitt, ég fór í fjórar aðgerðir og grenntist um 10-15 kg og var bara einhvern veginn alveg í rusli. En nú er ég farinn að geta stundað æfingar og annað, ég er að ná að styrkja hendurnar og geta gert meira. Það er kannski eitthvað sem manni dettur ekki í hug, sem maður hefur ekki gert í tæplega 30 ár. Svo prófar maður allt í einu að gera eitthvað og það bara virkar.“

Segir Guðmundur það ótrúlega tilfinningu. Hann slær meðal annars garðinn og vinnur í blómabeðunum. Segist hann þreytast hraðar í höndunum en í öðrum vöðvum, en alltaf verða að verða betri. „Það er hægt að setjast aftur og vera sáttur við það sem maður hefur. En ef maður er tilbúinn að ýta sér svolítið þá finn ég að það hjálpar.“

Hlusta má á viðtalið við Guðmund Felix í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu

Krefst svara um hvort mannréttindi séu brotin í almannatryggingakerfinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag

Málverkum stolið af sýningu í Bolholti um hábjartan dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað

Réttarhöld framundan í Edition-málinu – Sökuð um að hafa brugðið snöru um háls dóttur sinnar og stungið hana í hjartað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“

Davíð segir aðeins tímaspursmál þangað til annað ungmenni láti lífið: „Við þurfum að vakna og það núna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla

Vendingar í deilu Bríetar og Pálma – Frávísun vegna verulegra ágalla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“

Gagnrýnir gagnrýni Snorra – „Gerið betur en gervigreind kæra stjórnarandstaða. Lygarnar eru allar ykkar megin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“

Áslaug Arna fær stuðning og gagnrýni eftir umfjöllun um laun hennar – „Hjóla af hörku og hatri gegn konum“ – „Sjúga spena ríkisins“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn

Kvartaði vegna trúnaðarbrests í sveitarstjórn