fbpx
Miðvikudagur 06.maí 2026
Fréttir

Fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík fullar eftir nóttina

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 2. febrúar 2019 08:02

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allar fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík voru fullar um sjöleytið í morgun og var byrjað að vista fanga í nágrannasveitarfélögum. Alls gistu þá 16 manns fangageymslur lögreglunnar.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í morgun. Þar segir meðal annars frá því að um hálfþrjúleytið í nótt var 15 ára ökumaður án ökuréttinda stöðvaður í Kópavogi. Var hann í bíltúr með félögum sínum sem náðu að hlaupa burtu þegar bíllinn hafði stöðvast. Ökumaðurinn og bíllinn voru færð til forráðamanna drengsins og málið tilkynnt til Barnaverndar.

Laust fyrir miðnætti var maður handtekinn í Breiðholti grunaður um eignaspjöll og var hann vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu.

Um miðnætti var tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 105. Tjónvaldur er grunaður um ölvun við akstur og var að lokinni sýnatöku vistaður fyrir rannsókn málsins í fangageymslu lögreglu.

Klukkan 00:40 var tilkynnt um umferðaróhapp í Kópavogi 200. Tjónvaldur er grunaður um ölvun við akstur og hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Hann var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.

Maður í annarlegu ástandi var handtekinn á heimili í Grafarvogi klukkan hálfsjö í gærkvöld. Hann er grunaður um vörslu fíkniefna og var vistaðurí fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Börn voru á heimilinu og Barnavernd því kölluð til.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“

Læknir varar við Kaffistofu Samhjálpar – „Foreldrar hafa því eðlilega áhyggjur af öryggi barna sinna“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg

Kristján Már lagði Reykjavíkurborg