fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Hamskipti Odee

Náði af sér 50 kílóum – Ný sería og nám

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 25. ágúst 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, eða Odee eins og hann kallar sig, er löngu orðinn þekktur fyrir állistaverk sín. Segja má að hamskipti hafi orðið í lífi hans á tæpu ári, en hann hefur náð af sér 50 kílóum með breyttu líferni, er sestur á skólabekk aftur og fagnar nýrri seríu af listaverkum.

„Ég er nýbyrjaður í skólanum og er strax byrjaður að fá fyrirspurnir um að greina fólk,“ segir Oddur og hlær, en hann er ný kominn af nýnemadögum Háskólans á Akureyri, þar sem hann var að hefja nám í sálfræði. „Kunningi minn hringdi í mig og sagðist vera að tala við konu og var að biðja mig að greina hvað hún meinti með hinu og þessu. Svo var ég uppi í álveri áðan og þar voru tvær konur að tala við mig og mjög varar um sig, hvort ég væri nú með eitthvert sálfræðipróf á þeim.“

Uppörvandi að stunda nám

Oddur var síðast í skóla fyrir þremur árum þegar hann lagði stund á viðskiptafræði við sama skóla, en hann hætti námi þegar vel fór að ganga í listinni. Aðspurður af hverju sálfræði varð fyrir valinu núna, segir hann hana góðan grunn fyrir margt annað og hann stefni ekki á að verða klínískur sálfræðingur. „Ég hef bara gaman af mannlegum samskiptum, svo er mikil heimspeki í náminu og þetta er góður grunnur til að læra margt annað. Ég væri til í að klára sálfræðina og fara svo í markaðsfræði til dæmis. Svo er bara svo skemmtilegt að læra og kynnast nýju fólki, það er uppörvandi að vera í skóla,“ segir Oddur.

Fjarnámið hyggst hann stunda með állistinni og fullri vinnu, en Oddur vinnur í álverinu á Reyðarfirði. „Ég vinn fimm daga í einu og er síðan í fimm daga fríi þannig að ég vona að þetta sé hentugt saman. Svo get ég kannski samið um að fá að lesa einhverjar bækur á næturnar í vinnunni.“

Þrjár sýningar og ný állistasería

Á Akureyri stendur núna yfir sýning á verkum Odds, eins konar yfirlitssýning, sem lýkur á Akureyrarvöku, sem fer fram núna um helgina, 25.–27. ágúst í Amaróhúsinu.

„Sýningin er eiginlega samantekt af mínum verkum,“ segir Oddur sem fór með öll álverk sem hann átti heima hjá sér á sýninguna á Akureyri. „Ég átti nokkuð gott safn hér heima af blönduðum verkum síðustu þriggja ára, sum þeirra eru frá því að ég byrjaði í listinni og ég er búinn að selja nokkur þeirra á sýningunni.“

Oddur fyrir utan Amaróhúsið á Akureyri þar sem skoða má úrval listaverka hans síðustu þrjú ár.
Yfirlitssýning á Akureyri Oddur fyrir utan Amaróhúsið á Akureyri þar sem skoða má úrval listaverka hans síðustu þrjú ár.

Í tilefni 10 ára afmælis Alcoa, verður Oddur síðan með tvær sýningar í álverinu á Reyðarfirði. „Þar verður peningaserían til sýnis, en hún vakti mikla athygli á Ljósanótt í Keflavík í fyrra. Svo verð ég annars staðar í álverinu með fimm metra álverk til sýnis,“ segir Oddur. Vonast hann til að það verk verði útilistaverk í sundlauginni á Eskifirði, en það bíður umsagnar frá íþrótta- og tómstundanefnd og menningar- og safnanefnd Fjarðabyggðar vegna sumarleyfa, „en ég vona að tillagan fái góðar móttökur.“

Oddur vonar að tillaga um útilistaverk við sundlaugina á Eskifirði verði samþykkt.
Verðandi útilistaverk? Oddur vonar að tillaga um útilistaverk við sundlaugina á Eskifirði verði samþykkt.

Ný sería í vinnslu

„Svo er ég að vinna í nýrri seríu sem ég vona að ég geti sýnt fyrir jól, hún heitir Ürverk, og þar er ég að vinna með einfaldleikann. Hvert verk er í raun einfalt í samsetningu, en mörg saman mynda þau eina heild. Serían tekur á nútíma efnishyggju, hlutum sem fólk langar í og er að kaupa í góðærinu sem er í gangi núna,“ segir Oddur.

„Svo er ég að vinna í nýrri seríu sem ég vona að ég geti sýnt fyrir jól, hún heitir Ürverk, og þar er ég að vinna með einfaldleikann. Hvert verk er í raun einfalt í samsetningu, en mörg saman mynda þau eina heild.“
Ný sería í vinnslu „Svo er ég að vinna í nýrri seríu sem ég vona að ég geti sýnt fyrir jól, hún heitir Ürverk, og þar er ég að vinna með einfaldleikann. Hvert verk er í raun einfalt í samsetningu, en mörg saman mynda þau eina heild.“

„Ég er alltaf að leita að nýjum efnivið og nýjum miðlum til að koma verkum mínum á framfæri og ég fylgist vel með nýjustu tækni, ég bind mig ekki við álið en það hentar vel núna. Álið skilar bjartri áferð og litum. Eitt af því sem mótaði listsköpunina hjá mér voru tölvuleikir og kvikmyndir, þetta var eitthvað nýtt þegar ég var að alast upp.“

Eitt af verkum nýju seríunnar, Ürverk.
Eitt af nýju verkunum Eitt af verkum nýju seríunnar, Ürverk.
Eitt af verkum nýju seríunnar, Ürverk, innrammað og komið á vegg.
Ürverk Eitt af verkum nýju seríunnar, Ürverk, innrammað og komið á vegg.

50 kíló farin á 10 mánuðum

Það er ekki ofsögum sagt að Oddur sé eins og nýr maður í útliti, en hann hefur misst 50 kíló síðan í október í fyrra. Hann fór þó ekki í neinar öfgar og byrjaði einfaldlega á að taka til í mataræðinu og ástæðan fyrir breyttu líferni er einföld: betri fyrirmynd fyrir synina.

„Mér leið alls ekki illa að vera of feitur, mér leið bara vel, jafnvel betur en núna,“ segir Oddur og hlær. „En þetta var spurning um að prófa eitthvað nýtt, ég ákvað að gera þetta að nýju áhugamáli og vera jafnframt góð fyrirmynd fyrir strákana mína, þeir eru fjögurra ára og eins árs. Ég varð einstæður faðir í október í fyrra og þurfti aðeins að hugsa minn gang og vildi geta gefið strákunum hollan mat og verið fyrirmynd. Svo hefur þetta ýmsa aðra kosti, maður passar til dæmis betur í flugvélasæti.“

Það stórsér á Oddi, en hann hefur misst 50 kíló á 10 mánuðum með breyttum lífsstíl.
Fyrir og eftir Það stórsér á Oddi, en hann hefur misst 50 kíló á 10 mánuðum með breyttum lífsstíl.

Oddur segir flesta vita hvað þurfi að gera, það kunni flestir að borða hollt, viti hvað má borða og hvað ekki og að maður þurfi að hreyfa sig. Hann segir best að byrja og setja sér markmið og ekki hætta fyrr en búið er að ná markmiðinu.
„Ég byrjaði á að breyta mataræðinu, sleppti nammi, gosi og snakki, minnkaði brauðið og borðaði kjöt, fisk, kjúkling og grænmeti og léttist heilmikið strax, það fóru um 20 kíló fyrstu tvo mánuðina. Svo hugsaði ég að ég gæti bætt við, byrjaði rólega í ræktinni og fékk mér forrit í símann, sem ég fór eftir og þetta er þannig að þegar maður fer í ræktina þá þarf maður að bíta á jaxlinn, svo kemst þetta upp í vana.“

Oddur líkir því að tileinka sér nýjan lífsstíl og mæta í ræktina við að byrja í nýrri vinnu; maður kunni ekki allt fyrsta daginn, svo eftir þrjá mánuði þá er maður farinn að kunna þetta. „Eins og í álverinu þá byrjar maður á að lesa handbækur og eltir einhvern um. Maður þarf svolítið að hugsa ræktina eins og gefa sjálfum sér séns á að læra hlutina. Það eru til ræktar- og næringarupplýsingar fyrir fólk á hvaða stigi sem það er. Sumir vilja taka þetta á hörkunni, en það er hægt að byrja á einhverju léttu og auka svo við, eins og ég gerði.

Ég var 155 kíló þegar ég byrjaði og er í dag 105 kíló. Þyngstur hef ég samt verið 170 kíló, þannig að ég var bara grannur þegar ég byrjaði í fyrra. Mig langar að komast í toppform og geta borðað það sem ég vil. Ég gefst ekki upp þótt ég detti í eitthvað óhollt af og til í dag. Ég held að 90 kíló séu hæfileg þyngd og ég verð líklega kominn þangað fyrir jól.“

Oddur hreyfir sig eitthvað alla daga, hvort sem það er hálftíma göngutúr eða ræktin, hann reynir að fara í ræktina 4–5 sinnum í viku og stefnir á að fara þrisvar í viku þegar markmiðinu er náð. Síðan hefur hann bætt við flóknari æfingum og bætt mataræðið.

„Ég finn að ég þarf að eyða orku alla daga og eins og núna í skólanum, þá verð ég örlítið eirðarlaus við að sitja lengi og finn fyrir þörf til að hreyfa mig. Núna er ég að missa eitt kíló á viku og það telst heilbrigt, og ég hef ekkert þurft að gera neitt „extreme“ til þess,“ segir Oddur léttari líkamlega, en uppfullur af orku og nýjum hugmyndum um lífið og listina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“