fbpx
Fimmtudagur 14.maí 2026
Pressan

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 17:30

Langur svefn getur hjálpað til við þyngdartap. Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar rætt er um þyngdartap, þá er oft talað um að borða minna og hreyfa sig meira. En samkvæmt því sem segir í umfjöllun Harvard Health Publishing, þá sýnir ný rannsókn að svefn skiptir mjög miklu máli varðandi hversu mikið við borðum.

Margir ná ekki sjö til níu klukkustunda svefni á nóttu eins og mælt er með. Þetta hefur verið tengt við aukna hættu á meðal annars hjartasjúkdómum, of háum blóðþrýstingi, sykursýki og ofþyngd.

Svefn er einnig mikilvægur varðandi andlega og líkamlega heilsu okkar.

Í rannsókn, sem var birt í vísindaritinu JAMA Internal Medicine, beindu vísindamenn sjónum sínum að 80 manns, á aldrinum 21 til 40 ára, sem var allt of þungt. Fólkið svaf yfirleitt skemur en 6,5 klukkustundir á nóttu.

Í tvær vikur var helmingur þeirra hvattur til að lengja svefninn í 8,5 klukkustundir en hinir héldu óbreyttum svefnvenjum. Fólkið mátti ekki breyta matarvenjum eða hreyfingu.

Svefninn var mældur með búnaði sem var settur á úlnlið og vísindamennirnir mældu einnig hitaeininganeysluna og orkunotkun.

Vísindamennirnir segja að hópurinn, sem var hvattur til að sofa lengur,  hafi að meðaltalið sofið einni klukkustund lengur á nóttu. Fólkið í honum hafi að meðaltali borðað 270 færri hitaeiningar á dag og lést um hálft kíló. Fólkið í hinum hópnum þyngdist að meðaltali um tæpt hálft kíló.

Harvard Health Publishing segir að svefn hafi áhrif á hormón sem stýra hungri og mettunartilfinningu. Of lítill svefn getur aukið matarlystina og gert fólki erfiðara fyrir við að finnast það vera mett.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“

Móðir í áfalli og sendir foreldrum skýra viðvörun – „Tíu mínútum síðar gerðist þetta“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar

Sífellt fleiri foreldrar hafna K-vítamínsprautu fyrir börn sín – Afleiðingarnar geta verið skelfilegar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið

Fékk viðurkenningarskjal eftir að hafa lúskrað á ferðamanni – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það

Góður gangur hjá Úkraínumönnum á vígvellinum – Sérfræðingur segir þetta skýra það
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar

Sálfræðingur segir að hamingjusömustu pörin geri þetta sér til skemmtunar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið

Ofursti skefur ekki utan af því – Norðmenn geta ekki lengur gengið