fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Sarah Ferguson grátbað Epstein um að ráða sig sem húshjálp – „Ég er hæfust og mig bráðvantar peninga“

Pressan
Mánudaginn 16. febrúar 2026 16:30

Sarah Ferguson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Meðal þess sem fundist hefur í Epstein-skjölunum eru niðurlægjandi tölvupóstar Söru Ferguson, fyrrverandi hertogaynju af York, til barnaníðingsins Jeffrey Epstein, þar sem hún margsinnis grátbiður Epstein um hjálp vegna blankheita.

Mirror greinir frá þessu.

Í tölvupóstunum er greinilegt að hertogaynjan fyrrverandi var mjög örvæntingarfull og á höttunum eftir stuðningi og peningum barnaníðingsins alræmda.

Í einum tölvupóstinum grátbað Ferguson Epstein um að ráða sig sem húshjálp (House Assistant):

„En af hverju, ég skil ekki, gerirðu mig ekki bara að húshjálpinni þinni. Ég er hæfust og mig bráðvantar peninga,“ segir hún í tölvupósti frá 2020. Og bætti við: „Gerðu það Jeffrey, hugsaðu um það.“

Síðar sama ár sendi hún þennan póst til níðingsins:

„Ég upplifi mig djúpt særða og aleina. Ég vil vinna fyrir þig við að skipuleggja húsin þín.“

Mánuði síðar hélt hún áfram: „Hvenær ætlarðu að ráða mig…Vinátta mín við þig er traust til enda…Mér þykir alltaf vænt um þig og veit að þú gerir það líka.“

Þessi skilaboð voru send Epstein eftir að hann hafði verið fundinn sekur um að gera barn út í vændi og hafði fengið 18 mánaða fangelsi í júní árið 2008.

Rannsóknir á bankagögnum hafa leitt í ljós að Epstein lét Ferguson fá 150.000 bandaríkjadali.

Sjá nánar hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð