
Fyrrverandi prestur í Orlando, Florida, sem hefur skapað sér nafn við að bjóða upp á og tala fyrir mjög umdeildum meðferðum til handa hinseginfólki, meðferðum sem í daglegu tali kallast oft „afhommun“, hefur orðið uppvís að því að senda kynferðisleg skilaboð til aðila sem hann hélt að væri 14 ára drengur.
Hinn 54 ára gamli Alan Chambers er sagður hafa byrjað að tala við leynilögreglumann sem þóttist vera unglingspiltur, í febrúar síðastliðnum. Samskiptin hófust á Snapchat en færðust síðan yfir á Telegram, auk sms-skeyta. Chambers klæmdist við lögreglumanninn, sem hann hélt að væri 14 ára unglingur, sendi honum nektarmyndir og reyndi að fá hann til að hitta sig.
Sagði Chambers þessum rafræna viðmælanda sínum að taka leigubíl til sín að skrifstofu hans í Winter Park, Florida.
Chambers var stöðvaður í akstri og handtekinn þann 19. maí og hefur verið ákærður fyrir tælingu ólögráða einstaklings í gegnum tölvu, deilingu á skaðlegu efni til ólögráða ungmennis og ólögmæta notkun á samskiptatæki.
Presturinn hefur verið látinn laus gegn tryggingu og bíður réttarhalda.
Chambers leiddi samtökin Exodus International, kristilega hreyfingu sem lagði sérstaka áherslu á áðurnefndar meðferðir fyrir hinsegin fólk. Aðferðirnar hafa verið harðlega gagnrýndar af samtökum hinsegin fólks.
Sjá nánar um málið hér.