fbpx
Þriðjudagur 12.maí 2026
Pressan

Íbúar innilokaðir á heimilum sínum vegna massatúrisma -„Við höfum náð fjöldatakmörkunum“

Pressan
Þriðjudaginn 12. maí 2026 07:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin fallega Amalfiströnd á Ítalíu er eftirsótt af ferðamönnum og farþegum skemmtiferðaskipa, og fjöldi þeirra gengur þrammandi um þröngar götur þorpsins vopnaður myndavélum með þeim afleiðingum að göturnar eru troðnar af fólki og heimamenn sem eru ósáttir við ástandið lokast inni á heimilum sínum.

Smábæirnir meðfram Amalfiströndinni hafa lengi verið áfangastaðir fyrir þá lifa vilja hinu góða lífi og eru stjörnurnar þar ekki undanskildar. Í dag eru þessir staðir orðið meira eins og martröð en sætt athvarf.

„Positano er bara svona þröngt og lítið, og allir ganga saman. Helmingurinn af fólkinu er að ganga upp og hinn helmingurinn er að ganga niður. Þetta var algjört kaos. Allir voru að snerta hvorn annan, öxl við öxl,“ sagði vonsvikinn bandarískur ferðamaður sem ferðaðist til Positano síðasta sumar.

@regis_simmons If you are visiting Positano get ready to walk a lot on very very crowded streets 😬😩😬 Sorrento is a better choice.#positano #positanoitaly #positanotravel #positanotip #positanocoast #italy #italytravel #italytiktok #sorrento #sorrentoitaly ♬ original sound – Regina

Íbúar eru skiljanlega óánægðir og sjá mannfjöldann sem merki um yfirvofandi ógn nú þegar sumarið er komið.

„Borgarstjórar og stjórnendur Amalfístrandarinnar eru hrifnir af þessu rugli; annars hefðu þeir þegar gefið út skipanir um að hafa stjórn á þessari fjöldaferðamennsku,“ sagði Antonio Attianese, íbúi á svæðinu. „Þetta hefur gengið svona í mörg ár og ástandið versnar með hverju ári“.

Fyrrverandi borgarstjórinn Salvatore Gagliano, sem á fimm stjörnu Grand Hotel Tritone í Praiano, benti á að fjöldi ferðamanna hafi ekki aðeins lokað fyrir gangandi vegi nýlega heldur einnig fyrir krókótta vegisem liggja að ströndinni. n„Vegirnir eru þröngir. Þegar þeir eru lokaðir ríkir algjört kaós.“

Hann heldur því fram að dagsferðamenn, sem heimamenn kalla „mordi e fuggi“ eða ferðamenn sem borða og hlaupa, séu að eyðileggja lúxus- og metnaðarfulla ímynd Amalfístrandarinnar. Þar að auki sagði hann að gestir hótelsins, sem eyða meira en 2.200 dollurum á nótt í gistingu, séu tregir til að yfirgefa hótelið til að fara í máltíð eða í skoðunarferð og nefna ástæðuna óbeit sína á mannfjölda.

Heimamenn benda á straum farþega skemmtiferðaskipa sem ástæðu fyrir óbærilegum mannfjölda.

„Við þurfum reglugerð sem bannar farþegum af skemmtiferðaskipunum að koma í land,“ sagði Gagliano. „Við ráðum ekki við svona marga. Fegurð Amalfi-strandarinnar er að spillast.“

Bæði gestir og heimamenn deila tilfinningunni um ofmettun.

„Þessu þarf að vera betur stjórnað. Það er ekki hægt að hafa þessa 40 manna ferðamannahópa sem taka svona mikið pláss í einu og láta allt þetta fólk koma inn og festast svona. Mjög hættulegt. Gott að við fórum snemma í dag, hvað þetta er rugl! Og svo sorgleg saga fyrir Positano og allt þetta svæði,“ sagði einn við myndband sem birt var 2. Maí.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Positano Notizie (@positanonotizie)

„Við höfum náð fjöldatakmörkunum okkar,“ skrifaði íbúi á Facebook. „Sem borgarar verðum við að læsa okkur inni á heimilum okkar því við höfum enn ekki lært að fljúga.“

Núverandi borgarstjóri Amalfí, Daniele Milano, heldur því fram að sveitarfélög geti ekki hindrað skemmtiferðaskip eða farþega í að komast að landi. Hann viðurkennir þó að meira er hægt og ætti að gera til að vernda svæðið fyrir umferðarteppu og til að vernda bæði heimamenn og gesti fyrir skaðlegum áhrifum massatúrisma.

„Borgarar og fyrirtækjaeigendur eiga rétt á að vera reiðir og þess vegna verðum við að styrkja ferlana og biðja um sérstakar reglugerðir til að stjórna þessum fyrirbærum sem hafa áhrif á ferðaþjónustu á vinsælustu áfangastöðunum,“ sagði hann í yfirlýsingu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu

Þessi þrjú eldhústæki ættu aldrei að vera í sambandi þegar þau eru ekki í notkun – Geta skapað mikla eldhættu
Pressan
Í gær

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki

Þetta finnst gáfuðu fólki afslappandi en venjulegt fólk þolir þetta ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt

Svona lengi getur þú setið áður en það verður hættulegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað

Þanin(n) og þreytt(ur)? – Þessir ávextir geta hjálpað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn

Lengd göngutúrsins getur verið mikilvægari en skrefafjöldinn