fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Hinir fullkomnu dagar – Upp um deild og eignaðist svo sitt annað barn

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 11. maí 2026 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Loris Karius, fyrrum markvörður Liverpool, og eiginkona hans Diletta Leotta hafa eignast sitt annað barn saman. Parið greindi frá gleðitíðindunum á Instagram þar sem þau birtu fallega fjölskyldumynd af sér með nýfæddum syni sínum, Leonardo, og tveggja ára dótturinni Aria.

Karius, sem er 32 ára gamall, leikur í dag með Schalke í Þýskalandi og hefur átt góðar vikur bæði innan sem utan vallar. Fyrir skemmstu tryggði Schalke sér sæti í efstu deild þýska fótboltans og nú hefur fjölskyldan einnig stækkað.

Diletta Leotta, sem er þekktur sjónvarpsmaður hjá DAZN á Ítalíu, birti myndina af fjölskyldunni af sjúkrahúsinu ásamt hlýlegum skilaboðum.

Karius er mörgum knattspyrnuáhugamönnum minnisstæður fyrir erfiðan leik með Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar árið 2018 gegn Real Madrid. Þar gerði þýski markvörðurinn tvö afdrifarík mistök í 3-1 tapi Liverpool í Kænugarði.

Eftir leikinn spilaði Karius aldrei aftur fyrir Liverpool og yfirgaf félagið formlega árið 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt