fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fókus

Leikkonan opnar sig um ógnvekjandi lífsreynslu – 18 ára og varnarlaus um borð í báti með „mjög frægum“ karlmanni

Fókus
Mánudaginn 11. maí 2026 20:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Hayden Panettiere er að gefa út æviminningar sínar en einn kafli úr bókinni hefur þegar vakið athygli. Þar rifjar leikkonan upp þegar hún lenti í ógnvekjandi aðstæðum aðeins 18 ára gömul.

Leikkonan, sem er fædd árið 1989, hafði snemma byrjað að vinna fyrir sér í skemmtanabransanum og var aðeins 11 mánaða gömul þegar hún lék í sinni fyrstu auglýsingu. Síðan lék hún í sápuóperunni One Life to Life á árunum 1994-1996 og þaðan fór hún yfir í sápuóperuna frægu, Leiðarljós, fram til ársins 2000. Þegar hún var 17 ára fékk hún eitt aðalhlutverkið í vinsælu ofurhetjuþáttunum Heros sem voru sýndir á árunum 2006-2010.

Hún lýsir því í æviminningum sínum að 18 ára gömul hafi hún farið með vinkonu sinni um borð í bát. Þar var hún leidd inn í herbergi þar sem eldri karlmaður beið hennar og henni var í grófum dráttum skipað að eiga við hann kynferðisleg samskipti.

Leikkonan segist hafa staðið í þeirri trú á þessum tíma að hún væri orðin fullorðin og fullfær um að taka upplýstar ákvarðanir. Hún er á annarri skoðun í dag.

„Það að ég var 18 ára, og jafnvel þó að ég hefði mikla reynslu á bakinu og fyndist ég vera svo þroskuð, þá er það bara vísindalega sannað að framheilinn okkar er ekki fullþroskaður fyrr en hvað, svona í kringum 25 eða 26 ára aldur? Svo jafnvel þó að mér hafi fundist ég geta tekið heilbrigðar ákvarðanir, öruggar ákvarðanir, þá var ég ekki fullfær um að átta mig á aðstæðum.“

Þetta segir leikkonan í hlaðvarpinu On Purpose with Jay Shetty þar sem hún ræðir bókina.

Þarna var hún 18 ára gömul og hafði talið sig hafa stjórn á aðstæðum. Síðan upplifði hún sig varnarlausa og átti sér engrar undankomu auðið þar sem hún var í bát á siglingu. Hún hafði farið um borð í bátinn og talið að hún ætti skemmtilegt kvöld í vændum.

„Ekkert benti til þess að eitthvað svona myndi gerast svo ég kom alveg af fjöllum.“

Vinkonan sem var þarna með henni var manneskja sem leikkonan treysti. Hún leit á þessa konu sem trúnaðarvin sinn og verndara. Þessi kona fylgdi henni inn í lítið herbergi þar sem nakinn karlmaður beið hennar.

„Hún bókstaflega kemur mér í rúmið við hliðina á þessum nakta karlmanni sem var mjög frægur.“

Þessi maður hafi látið eins og ekkert væri eðlilegra í heiminum en það sem var að eiga sér stað. Panettiere segist strax hafa farið í sjálfsbjargarham.

„Þetta vakti ljónið innra með mér. Hárin á mér risu og ég varð grimm. Ég hugsaði með mér: Þetta er ekki að gerast.“

Hún flúði svo úr herberginu og reyndi að fela sig.

„Það var ekki hægt að stökkva fyrir borð og synda í land. Og það var enginn þarna sem sýndi aðstæðum mínum nokkra samúð. Ég áttaði mig á að þetta var ekkert nýtt fyrir þeim.“

Hún upplifði sig illa svikna af þessari vinkonu sinni og segir að þetta hafi kennt henni dýrmæta lexíu um hverjum hún treystir.

Bókin This is Me: A Reckoning kemur út þann 19. maí.

People greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“

Áhrifavaldur varð fyrir vonbrigðum með Ísland – „Hvað Ísland gerði til að laða að sér þetta marga ferðamenn er rannsóknarefni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“

Netverjum misboðið yfir myndum sem leikkonan birti af sér og syni sínum – „Þetta verður á netinu um ókomna tíð“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð

Erna Hrund selur í Skektuvogi – Segist til í að skilja eitthvað eftir í baðskápunum fái hún tilboð
Fókus
Fyrir 4 dögum

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn

Trúði því ekki þegar konur sögðu hann kyntákn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“

Ólöf greinir frá góðverki ársins – „Auðvitað ekki stætt á því að standa í vegi örlaganornarinnar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“

Hefur litlar áhyggjur af því að framhaldsskólanemar lesi ekki lengur Njálu – „Ég man enn hvað mér fannst hún leiðinleg við fyrsta lestur“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 1 viku

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur