
Ummæli og aðgerðir Trump hafa hrundið þróun af stað sem er nú farið að gæta af krafti í litlum bandarískum bæjum við kanadísku landamærin.
Onet skýrir frá þessu og segir að í Washingtonríki berjist litlar verslanir, landamæraverslanir, nú fyrir lífi sínu. Áður fyrr streymdu Kanadabúar yfir landamærin til að versla ódýrt í þessum verslunum en nú eru þeir að mestu hættir því.
Einn verslunareigandi skóf ekki utan af hlutunum og sagði einfaldlega: „Það er steindautt.“
Tölurnar staðfesta þessa þróun. Ef ferðir bíla, sem eru skráðir í Kanada, yfir landamærin eru skoðaðar sést að þeim hefur fækkað um þriðjung miðað við það sem var áður en Trump efndi til illinda við Kanada.
Ferðamannastaðir og ferðamannabæir finna einnig fyrir þessu því hótelgestum hefur fækkað, ferjuferðum hefur verið fækkað vegna færri farþega og verslanir hafa misst mikilvægustu viðskiptavini sína.
Í Kanada eru viðbrögð almennings einnig greinileg. Margir sniðganga meðvitað bandarískar vörur og kaupa þess í stað kanadískar vörur. Þetta snýst ekki lengur um verð í huga fólks, þetta snýst um að taka afstöðu.
Fyrir utan efnahagslegu áhrifin þá hefur þetta áhrif á fólk og sambönd fólks þvert á landamæri. Fjölskyldur, vinir og fyrirtæki, sem fóru áður yfir landamærin eða störfuðu þvert á þau, gera það ekki lengur.
Landamærin, sem voru áður ein þau opnustu og vinsamlegustu í heiminum eru nú mun lokaðri og tortryggni og óöryggis gætir.