fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Á þessum tímapunkti lífsins sýnir einmanaleikinn sitt ljóta andlit

Pressan
Sunnudaginn 19. apríl 2026 13:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á lífsleiðinni gerir einmanaleiki stundum vart við sig og stundum svo mikill að þetta er meira en bara tilfinning sem líður hjá á skömmum tíma. Það er því mikilvægt að geta áttað sig á þegar þetta er að gerast og geta þannig viðhaldið jafnvægi og heilbrigði á líkama og sál.

Þvert á það sem margir halda, þá eykst einmanaleikatilfinningin ekki línulega með aldrinum. Í stórri rannsókn, sem hefur verið birt í Sage Journals, þá fylgir einmanaleiki U-laga kúrfu. Hann nær lægsta punktinum um fertugsaldurinn og hækkar síðan á nýjan leik á efri fullorðinsárum. 128.000 manns á aldrinum 13 til 103 ára, í rúmlega tuttugu löndum, tóku þátt í rannsókninni.

Þetta þýðir að tilhneigingin til einangrunar og einmanaleika vex, sérstaklega eftir 60 til 65 ára aldur, því þá fer hið félagslega tengslanet minnkandi og heilsufarið og hreyfanleiki verður viðkvæmari.

En þetta þýðir ekki að unga fólkið sleppi alveg því niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna að einmanaleiki fer vaxandi meðal ungmenna og ungra fullorðinna.

Félagsleg einangrun er jafn skaðleg fyrir heilsufarið og að reykja 15 sígarettur á daga eða glíma við áfengissýki. Þetta eru niðurstöður rannsóknar frá 2015.

Áhrifa félagslegrar einangrunar gætir á fleiri sviðum en því andlega því hún eykur líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum, þunglyndi, minni hugrænni getur og lækkar einnig væntanlega lífaldur. Er þetta sagt hafa allt að tvöfalt meiri áhrif á heilsufarið en offita.

Mikilvægustu merkin um einmanaleika

Ákveðin merki ættu að vara þig við að um einmanaleika sé að ræða:

Minna samband við vini og ættingja

Tilfinningin um að sambandið skorti tilgang eða veiti ekki stuðning

Minni áhugi á hópstarfsemi (íþróttum, félagsstarfsemi og þess háttar)

Erfiðleikar með að láta tilfinningar sínar í ljós eða deila hugsunum sínum

Tilhneiging til að eyða meiri tíma við skjáinn

Neikvæðari eða krítískari sýn á sjálfan sig eða aðra

Dregur sig í hlé frá félagslegum samskiptum þrátt fyrir að segjast vilja meiri tengsl við aðra

Það þarf að taka atferli, sem leiðir til einangrunar, alvarlega, hvort sem það er af fúsum og frjálsum vilja eður ei, því það eykur einmanaleikatilfinninguna.

Þrátt fyrir að rannsóknir sýni að einmanaleiki fari vaxandi eftir 65 ára aldurinn, þá sýna þær einnig að aðrir þættir eru ekki síður mikilvægir, til dæmis að vera einhleypur eða að hafa misst makann, líkamleg heilsufarsvandamál, sjálfstæðismissir, lágt menntunarstig eða skortur á félagsskap sem veitir stuðning.

Einmanaleiki getur því gert vart við sig á hvaða aldri sem er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu

Dýr mistök á opnunardegi pitsastaðar – Greiddu viðskiptavinum fyrir að kaupa pítsu
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Í gær

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár

Mesta manntal sögunnar er hafið – Tekur eitt ár
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins