
Smith tók þátt í athöfninni, sem var á vegum Life Changing Ministries kirkjunnar. Athöfninni var streymt beint á Facebooksíðu kirkjunnar en útsendingu var hætt og upptakan fjarlægð eftir að slysið átti sér stað.
Verið var að skíra Smith í lítilli sundlaug við húsið þegar hann drukknaði. Hann flutti til Bretlands 25 árum áður og settist að í Lundúnum. Hann átti sjö barnabörn að sögn Metro.
Eftir því sem fjölskylda hans segir, þá var hann skírður þegar hann var á unglingsaldri en hann viljað láta skíra sig aftur til að verða „endurfæddur trúaður“.
Talsmaður saksóknara sagði að ákveðið hafi verið að ákæra Bartley fyrir manndráp af gáleysi þar sem hún hafi verið prestur í skírninni. Hann fór ekki nánar út í hver atburðarásin var þegar slysið varð.