
Það fyrsta sem margir gera þegar þeir vakna er að kíkja á símann og það er líka það síðasta sem þeir gera fyrir háttinn. Hann fylgir okkur í gegnum daginn með öllu því sem fylgir.
Hann er jafnvel tekinn með á klósettið, í bílinn, við erum með hann á meðan við borðum, í búðinni og í vinnunni. Hann er sjaldan þrifinn svo bakteríur eiga sinn sælureit á honum.
Það er því kannski engin furða að símarnir séu skítugri en við reiknum með.
Danska matvælastofnunin sendi nýlega frá sér ábendingu til þeirra sem nota símann þegar þeir eru að elda, hvort sem það er til að lesa uppskriftir eða bara þvælast um á samfélagsmiðlum eða Internetinu.
Bendir stofnunin á að það sé mikilvægt að hugsa um hreinlætið á meðan eldað er. Því sé gott að þvo sér oft um hendurnar á meðan á eldamennskunni stendur og ekki sé síður mikilvægt að þrífa skjáinn á farsímanum eða spjaldtölvunni.
Með því fjarlægir maður skít, bakteríur og veirur sem gætu annars borist í matinn og haft neikvæð áhrif á heilsuna.
Símar eru sannkallaðar gróðrarstíur baktería og hefur jafnvel verið sýnt fram á í rannsóknum að þeir séu skítugri en klósettsetur.