fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Pressan
Laugardaginn 18. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blanda reglulegrar hreyfingar, holls mataræðis og nægs svefns skiptir miklu máli í baráttunni við magafituna þegar fólk er komið yfir fimmtugt. Þá getur sú barátta virst ansi erfið því það hægir á efnaskiptum líkamans og hormónajafnvægið breytist.

En miðað við niðurstöður rannsókna og það sem sérfræðingar segja, þá gerir það mikið fyrir fólk ef það heldur sig við viðeigandi líkamsæfingarútínu á þessu lífsskeiði.

Mayo Clinic segir að fitan sem safnast í kringum magann og innri líffærin sé hættulegri en önnur fita því hún tengist auknum líkum á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki 2 og ákveðnum tegundum krabbameins.

Sem betur fer þarf ekki að halda sig við erfið líkamsræktarprógrömm til að takast á við þetta. Leyndarmálið er samræmi og að velja æfingar sem hæfa aldrinum.

Hér eru fjórar einfaldar æfingar sem geta hjálpað þér við að minnka magafituna:

Rösk ganga – Þetta er ein aðgengilegasta og áhrifaríkasta æfingin. Cleveland Clinic segir að það að fara reglulega í göngutúra þar sem er gengið rösklega sé ein áhrifamesta leiðin til að minnka magafituna. „Að ganga í 30 mínútur á dag getur hjálpað til við að minnka magafituna og bættu insúlínnæmið,“ segir í heilbrigðisleiðbeiningum fyrir eldra fólk að sögn Globo.

Gönguferðir hlífa einnig liðunum, bæta skapið og eru hreyfing sem hæfir fólki yfir fimmtugu.

Hóflegar styrktaræfingar – Léttar æfingar með lóð eða æfingar með líkamsþyngdinni, til dæmis hnébeygjur eða armlyftur, vinna gegn aldurstengdri vöðvarýrnun og bæta þar með efnaskipti líkamans.

MedlinePlus segir að styrktaræfingar hjálpi til við að minnka líkamsfitu, þar á meðal magafitu, með því að auka vöðvamassann og þar með það magn hitaeininga sem líkaminn brennir þegar hann er í hvíld.

Þú þarft ekki að lyfta þungum lóðum, það er nóg að lyfta tvisvar eða þrisvar í viku í 20 til 30 mínútur og beina athyglinni að mestu að stóru vöðvunum.

Kjarnaæfingar – Að styrkja kjarna líkamans hjálpar ekki bara til við að draga úr staðbundinni fitu, það bætir einnig líkamsstöðuna og getur dregið úr líkunum á að fólk detti. Æfingar á borð við plankann, meira að segja útgáfan þar sem maður notar hnén, virkjar kjarnanna án þess að valda álagi á liðina.

Mayo Clinic ráðleggur fólki að gera æfingar af þessu tagi tvisvar til þrisvar í viku.

Lágstyrktarþjálfun með lítilli ákefð – Þeir sem eru í góðu formi en vilja takast á við aðeins meiri áskorun án þess þó að fara alveg að ystu mörkunum, þá er lágstyrktarþjálfun með hléum góður kostur. Í þessu felst að taka stuttar æfingar með hæfilegri ákefð en inn á milli er hlé eða léttari æfingar.

Cleveland Clinic segir að slíkar æfingar hafi reynst áhrifaríkar við að minnka magafitu og bæta efnaskiptin, sérstaklega hjá eldra fólki.

Meðal æfinga í þessum flokki er að ganga upp brekkur, stiga eða hjóla á æfingahjóli og breyta oft um hraða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Fyrir 22 klukkutímum

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans

Söngvarinn handtekinn vegna rotnandi líks táningsstúlku sem fannst í Teslu-bifreið hans
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu

Harmleikur á heimili fyrrverandi vararíkisstjóra í hatrammri skilnaðardeilu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta konan á leið í gálgann

Fyrsta konan á leið í gálgann