fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Trump reyndi að fá DoorDash-sendilinn til að tjá sig um hitamál – Það misheppnaðist hrapallega

Pressan
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Donald Trump Bandaríkjaforseti ákvað að nýta sér sendingarþjónustuna DoorDash og pantaði heimsenda máltíð frá McDonalds í Hvíta húsinu. Sendillinn heitir Sharon Simmons en hún er kölluð DoorDash-amman og ákvað Trump að gefa henni 100 dollara í þjórfé. Myndavélarnar voru í gangi þegar sendingin kom og þar gekk Simmons að hurð forsetaskrifstofunnar og bankaði þar á dyrnar. Trump kom til dyra og sagði: „Hæ, gaman að sjá þig. Sko, þetta,“ svo leit hann á myndavélarnar og spurði: „Þetta lítur ekkert út fyrir að vera sviðsett, er það?“

Að sjálfsögðu var þetta samt sviðsett, enda fæstir vanir að bíða eftir heimsendingum með heilt tökulið og líklega hafa sendlar ekki svona óhindrað og auðvelt aðgengi að skrifstofu forseta Bandaríkjanna, öllu að jafnan. Forsetinn var þarna að reyna að vekja athygli á tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem heimila skattafrádrátt frá tekjum í formi þjórfés. Um er að ræða aðgerðir sem þykja nokkuð vinsælar en hafa þó fallið í skuggann af Íransstríðinu.

Simmons var spurð hvernig skattaafslátturinn hefði hjálpað henni og hún útskýrði að hún hefði á þessu ári þénað rúmlega 11 þúsund bandaríkjadali í þjórfé sem nemur tæplega 1,4 milljónum íslenskra króna. Trump er þó ekki þekktur fyrir að halda sig við efnið svo hann ákvað að nýta þennan fund með DoorDash-ömmunni til hins ýtrasta og bauð viðstöddum blaðamönnum að spyrja hann út í hvað sem er. Forsetinn fékk spurningar um Hormússundið í Íran og deilur hans við páfann. Loks mundi forsetinn að blessaður sendillinn var enn með honum svo hann sneri sér að Simmons og spurði hana hvort hún hefði kosið hann.

„Uh, kannski,“ svaraði sendillinn vandræðalega. Svo fékk hún spurningu frá blaðamanni um hvort að forsetinn hefði gefið henni gott þjórfé: „Uh, mögulega,“ sagði aumingja DoorDash-amman sem líklega lendir sjaldan í svona í vinnu sinni. Forsetinn ákvað þá að fá meira afgerandi svar frá henni með því að rétta henni 100 dollara seðil. Þá hló Simmons og svaraði að forsetinn væri vissulega gjafmildur hvað þjórfé varðar.

Af einhverri ástæðu ákvað Trump þá að spyrja Simmons um mikið hitamál í Bandaríkjunum, hvort trans konur megi keppa í íþróttum. Simmons lét þó ekki plata sig út í slíkar umræður og tók fram: „Ég hef engar skoðanir á því.“

Trump: „Ekki það? Ég held þú hafir skoðanir á því…“

DoorDash-amman: „Nei, ég er hér út af… “

Trump: „Pitsu?“

DoorDash-amman: „Nei til að tala fyrir skattfrjálsu þjórfé.“

Simmons hefur slegið í gegn í netheimum bæði fyrir það að láta ekki forsetann plata sig í taka undir með honum um málefni trans kvenna heldur líka fyrir störf sín almennt, en hún mun hafa byrjað að sendast með mat fyrir DoorDash árið 2022 til að borga fyrir krabbameinsmeðferð eiginmanns síns. Hún er mikill talsmaður þess að þjórfé verði gert skattfrjálst enda fær hún helming tekna sinna í gegnum þjórfé. Hún segir að skattaafsláttur forsetans skipti máli fyrir fólk eins og hana og eiginmann hennar. Simmons hefur samt líka verið gagnrýnd. Margir telja að hér hafi verið um vel skipulagða markaðssetningu að ræða sem hafi í raun verið auglýsing fyrir bæði forsetann og DoorDash, og töldu margir að sorgarsaga Simmons væri fölsk. Hún hefur þó stigið fram í fjölmiðlum þar sem hún fullyrðir að saga hennar sé raunveruleg þó  hún gangist við því að hafa stutt við stefnur Trump í gegnum kjörtímabilið, enda sé það henni mikið hagsmunamál að þjórfé sé undanþegið skatti.

Hún sagði við Fox-fréttastofuna að hún hafi ekki viljað tjá sig um nein hitamál á þessum viðburði með forsetanum þar sem það er ekki hver hún er. Hún sé bara hefðbundnn Bandaríkjamaður eins og allir aðrir.

„Ég elska alla. Ég elska fólk hvar sem það stendur varðandi mismunandi málaflokka því þannig var ég alin upp.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna

Ertu komin(n) yfir fimmtugt? – 4 auðveldar æfingar sem geta hjálpað þér að minnka magafituna
Pressan
Fyrir 20 klukkutímum

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð

Sænskur einfari handtekinn 21 ári eftir tvö morð
Pressan
Í gær

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi

„Bölvunin“ sem fylgdi Jessicu úr brunninum — sjálfsvíg, skilnaður og heimilisofbeldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?

Ný gögn varpa ljósi á harmleikinn: Hvað gerðist dagana áður?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð