
Sky News skýrir frá þessu og segir að annar mannanna hafi farið með málið fyrir dóm í kjölfar þess að bróðir hans var skráður faðir barnsins á fæðingarvottorði þess.
Fjölskylduréttur neitaði að fjarlægja nafn hins meinta „föður“ af fæðingarvottorðinu og því fóru konan og hinn tvíburinn með málið fyrir áfrýjunardómstól í Lundúnum. Niðurstaða hans var að það „sé ekki hægt“ að vita með vissu hvor maðurinn sé faðir barnsins.
Fyrir dómi kom fram að DNA-rannsókn myndi ekki geta greint á milli mannanna en ekki sé þó útilokað að vísindamenn geti skorið úr því í framtíðinni.