fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Kúba undirbýr sig undir árás frá Bandaríkjunum – „Ef við þurfum að deyja, þá deyjum við“

Pressan
Sunnudaginn 12. apríl 2026 20:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti Kúbu, Miguel Díaz-Canel, segir þjóð sína nú undirbúa sig undir árás frá Bandaríkjunum en að það komi ekki til greina að gefast upp.

„Ef það gerist þá verður barist, það verða átök og við munum verja okkur og við þurfum að deyja, þá deyjum við því eins og segir í þjóðsöngnum okkar: „Að deyja fyrir föðurlandið er að lifa“.“

Þetta sagði forsetinn við NBC-fréttastofuna í dag. Undanfarin misseri hefur ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta gefið til kynna að Kúba sé skotmark, enda þurfi að binda endi á valdatíð kommúnista þar í landi.

„Ég er óhræddur. Ég er reiðubúinn að láta lífið fyrir byltinguna,“ segir Díaz-Canel en bætir þó við að hann vildi heldur að Bandaríkin létu Kúbu í friði. Bandaríkin hafa sett orkubann á Kúbu sem hefur orðið til þess að eldsneytisbirgðir þar hafa snarminnkað og hefur valdið víðtæku rafmagnsleysi ásamt samgöngutruflunum. Áratugalangt viðskiptabann Bandaríkjanna hefur svo eins sett mark sitt á þjóðina og það ásamt óráðsíu í ríkisrekstri hefur lagt efnahag Kúbu í rúst.

Díaz-Canel telur tilgangslaust að reyna að ganga að samningaborðinu við ríkisstjórn Trump enda hafi mátt sjá það í samningaviðræðum Bandaríkjanna við Íran, þar sem hernaðarárásir áttu sér stað á meðan á viðræðunum stóð, að Bandaríkjunum sé ekki treystandi.

Bandaríkin hafa undanfarið hert þvingunaraðgerðir gegn Kúbu svo til viðbótar við víðtækt rafmagnsleysi og eldsneytisskort eru matarbyrðir sagðar á þrotum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO