fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Pressan

Andrés Mountbatten-Windsor handtekinn og færður í fangaklefa

Pressan
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 10:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrés Mountbatten-Windsor, áður þekktur sem Andrés Bretaprins, hefur verið handtekinn vegna gruns um misferli í opinberu starfi. Frá þessu greinir BBC.

Prinsinn fyrrverandi, sem fagnar 66 ára afmæli sínu í dag, var handtekinn nú í morgun af lögreglunni í Thames Valley. Handtakan tengist rannsókn á meintu misferli í opinberu starfi og mun Andrés nú sitja í fangaklefa.

„Í tengslum við rannsókn handtókum við í dag (19. febrúar) mann á sjötugsaldri frá Norfolk, grunaðan um brot í opinberu starfi, og erum að framkvæma húsleit á heimilisföngum í Berkshire og Norfolk,“ segir í yfirlýsingu lögreglu þar sem tekið er fram að í samræmi við lög og reglur verði hinn handtekni ekki nafngreindur að svo stöddu og eru fjölmiðlar beðnir um að gæta varúðar við birtingu persónuupplýsinga. Lögreglan segist gera sér grein fyrir þeim áhuga sem almenningur hefur á málinu og verða fleiri upplýsingar veittar þegar tilefni gefst.

BBC greinir frá því að ómerktir lögreglubílar hafi sést í morgun við dvalarstað Andrésar í Sandringham-höll. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem Andrés er handtekinn. Til rannsóknar er meðal annars hvort Andrés hafi lekið trúnaðarupplýsingum þegar hann starfaði sem sérstakur erindreki Bretlands, þar með talið til níðingsins Jeffrey Epstein, en vinskapur Andrésar og Epsteins hefur þegar leitt til þess að Andrés var sviptur konunglegum titlum.

Keir Stamer forsætisráðherra Bretlands sagði fyrr í vikunni að enginn í landinu sé yfir lögin hafin þegar hann var spurður út í mál Andrésar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump

Repúblikanar streyma að útganginum og það ógnar Trump
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður

Ellilífeyrisþegi brást illa við dróna og skaut hann niður
Pressan
Í gær

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum

Ný hótun frá Rússlandi beinist að Finnlandi og Eystrasaltsríkjum
Pressan
Í gær

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður

Íranir opna Hormússund og olíuverð lækkar – Trump glaður
Pressan
Fyrir 3 dögum

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu

Aflimaður fyrir neðan nafla eftir hræðilegt slys – Grætur bara yfir einu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO

Ný varnarlína Evrópu: Plan B í vinnslu ef Trump yfirgefur NATO