fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Pressan

Kennslukona á 60 ára fangelsi yfir höfði sér – Beitti nemanda kynferðislegu ofbeldi

Pressan
Þriðjudaginn 24. júní 2025 03:45

Christina Formella. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska kennslukonan Christina Formella, sem er þrítug, á allt að 60 ára fangelsi yfir höfði sér fyrir að hafa beitt 14 ára nemanda sinn kynferðislegu ofbeldi rúmlega 50 sinnum.

Formella starfaði sem sérkennari í bandarískum skóla. Hún var handtekin í mars eftir að móðir 14 ára pilts sá sms-skilaboð, sem höfðu gengið á milli Formella og sonar konunnar. Skilaboðin vöktu miklar áhyggjur hjá móðurinni.

Í einum skilaboðunum skrifaði Formella: „Ég elska að stunda kynlíf með þér.“

Formella var upphaflega kærð fyrir að hafa misnotað piltinn þrisvar sinnum kynferðislega. En umfang málsins jókst og nú er búið að ákæra hana í 55 liðum fyrir brot gegn piltinum. ABC 7 skýrir frá þessu.

Saksóknari heldur því fram að Formella hafi misnotað piltinn frá því að hann var 14 ára og að hún hafi stundað kynlíf með honum 45 sinnum, bæði á skólatíma og heima hjá henni.

Saksóknarinn segir að lögreglan hafi fundið „hundruð ef ekki mörg þúsund textaskilaboð“ sem passi vel við lýsingar piltsins þegar hann var yfirheyrður af lögreglunni.

Þrátt fyrir öll skilaboðin sem gengu á milli Formella og piltsins, þá neitar hún sök.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan

Foreldrarnir héldu að níu ára sonurinn væri bara þreyttur – Síðan kom niðurstaðan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?

Andlát Hedviga Golik – Hvernig gat þetta átt sér stað?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt

Sydney Sweeney er byrjuð að selja baðvatnið sitt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána

Rafmyntafjölskylda grípur til aðgerða í kjölfar mannrána
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fékk áfall þegar hann komst að því að hann hefði gift sig án þess að vita af því

Fékk áfall þegar hann komst að því að hann hefði gift sig án þess að vita af því
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Samþykkt af einræðisherra“ – Skúlptúr móðgar embætti forseta Bandaríkjanna

„Samþykkt af einræðisherra“ – Skúlptúr móðgar embætti forseta Bandaríkjanna