fbpx
Þriðjudagur 15.júlí 2025
Pressan

Stærðin getur skipt máli

Pressan
Laugardaginn 21. júní 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stærð getnaðarlima hefur oft verið umræðu- og áhyggjuefni margra. Ekki eru allir, bæði konur og karlar, á einu máli um hvort stærðin skipti máli. En nú hafa vísindamenn kveðið upp úr um að stærðin getur skipt máli en ný rannsókn þeirra sýnir þetta.

Það er þó eflaust mörgum léttir að vísindamennirnir voru ekki að rannsaka hvort stærð getnaðarlima skipti máli þegar kemur að ánægju kvenna í kynlífi. Þeir voru að rannsaka hvort stærðin skipti máli hvað varðar frjósemi karla. The Times skýrir frá þessu.

Vísindamennirnir rannsökuðu gögn um 815 karla og komust að því að karlar sem glímdu ekki við frjósemisvanda voru að meðaltali með 13,4 sm langa getnaðarlimi og er þá miðað við lim í fullri reisn. Þeir sem glímdu við frjósemisvanda voru hins vegar að meðaltali með 12,5 sm langa getnaðarlimi í fullri reisn.

Austen Slade, sem stýrði rannsókninni, segir að karlar þurfi þó ekki að óttast um frjósemi sína þótt getnaðarlimir þeirra séu í styttra lagi að þeirra mati því ýmislegt bendi til að frjósemi eða skortur á henni sé meðfæddur eða erfðafræðilegur þáttur.

Sheena Lewis, læknir og sérfræðingur í frjósemi við háskólann í Belfast á Norður-Írlandi, segir að hún telji ekki að læknar fari að gera meira af því að mæla lengd getnaðarlima sjúklinga sinna þótt þessi niðurstaða liggi fyrir.

„Eitt af því sem hræðir karla er að stærðin skipti máli. Að segja að það séu minni líkur á að þeir verði feður eru ekki góð skilaboð. Þetta er mjög frumleg hugmynd en rannsóknin segir okkur ekki hver eðlileg lengd getnaðarlims er.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 1 viku

„Ósýnileg“ bílastæðagjöld úrskurðuð ólögleg

„Ósýnileg“ bílastæðagjöld úrskurðuð ólögleg
Pressan
Fyrir 1 viku

Sakamál: Skelfileg aðkoma lögreglu eftir að nágrannar lýstu yfir áhyggjum af 69 ára konu

Sakamál: Skelfileg aðkoma lögreglu eftir að nágrannar lýstu yfir áhyggjum af 69 ára konu
Pressan
Fyrir 1 viku

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina

Með þessu algenga kryddi getur þú haldið mýflugum fjarri alla nóttina
Pressan
Fyrir 1 viku

Rannsókn sýnir samhengi á milli kaffidrykkju og öldrunar

Rannsókn sýnir samhengi á milli kaffidrykkju og öldrunar
Pressan
Fyrir 1 viku

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum

Svona er hægt að losna við svitalykt úr handarkrikunum
Pressan
Fyrir 1 viku

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó

Er líf eftir dauðann? Lítil stúlka upplifði ótrúlega hluti þegar hún dó
Pressan
Fyrir 1 viku

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju

Ævilangt fangelsi fyrir að myrða skólapilt með sveðju
Pressan
Fyrir 1 viku

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið

Pokémonspilum að verðmæti 400.000 stolið