Ef þú hefur farið í hringekju eða álíka tæki þá veistu að þú finnur fyrir snúningnum, þú dregst út á við og getur ekki gert annað en að reyna að þrauka þetta. Jörðin snýst mun hraðar en samt þurfum við ekki að halda okkur dauðahaldi til að deyja ekki. Af hverju?
Live Science segir að það séu aðallega tvær ástæður fyrir því að við finnum ekki fyrir snúningnum.
Önnur er að snúningur er svo mjúkur.
Hin er þyngdaraflið. Það er svo miklu sterkara en það afl sem þarf til að láta okkur takast á loft og út frá jörðinni vegna snúnings hennar.