Þú hefur líklega velt fyrir þér hvort það breyti einhverju hvort þú burstar tennurnar áður en þú borðar hafragrautinn eða ristaða brauðið.
Það er augljóst í huga sumra að rétt sé að borða morgunmatinn fyrst og síðan tannbursta sig til að ná matarleifunum úr tönnunum áður en dagsverkið hefst.
Fyrir aðra er algjörlega útilokað annað en að tannbursta sig um leið og farið er á fætur til að munnurinn og tennurnar verði hreinar eftir nætursvefninn.
Anna Peterson, tannlæknir, er ekki rög við að miðla af þekkingu sinni á málum tengdum tannhirðu og nýtir sér samfélagsmiðla til þeirra verka að sögn ladbible.com.
Hvað varðar fyrrgreinda ráðgátu þá segir hún að best sé að snara sér beint inn á baðherbergi þegar farið er á fætur og tannbursta. Hún segir að fyrir þessu séu aðallega tvær ástæður: „Þegar þú borðar morgunmat, súrnar munnurinn. Ef þú burstar tennurnar eftir að þú borðar morgunmat, þá burstar þú sýruna inn í tennurnar og það eyðir glerungnum. Ef þú byrjar daginn hins vegar á að bursta tennurnar, þá verndar þú þær gegn morgunmatnum.“