Á mánudag var hin 35 ára gamla Samantha Bevans dæmd fyrir morð af fyrstu gráðu. Þann 14. júlí 2022 kæfði Bevans stjúpmóður sína, hina 58 ára gömlu Jodie Bevans með kodda og montaði sig af því á Snapchat.
Kærasti Samönthu, Tacoa Talley, var dæmdur fyrir morð af fyrstu gráðu og dæmdur í lífstíðarfangelsi í fyrra fyrir morðið. Saksóknarar sögðu að Bevans hefði myrt stjúpmóður sína í hefndarskyni fyrir að hafa rekið hana út af heimilinu,
Jodie var sofandi þegar hún var kæfð með koddanum, en aðrir fjölskyldumeðlimir voru í útilegu þegar árásin átti sér stað.
Meðan á réttarhöldunum stóð sýndu saksóknarar kviðdómi Snapchat myndband af Bevans sem virðist játa á sig morðið. „Ég drap hana,“ sagði Bevans. „Ég drap hana sjálf.“
„Og ég vissi að þetta myndi gerast, vel gert,“ sagði Talley á myndbandinu. „Við drápum hana,“ sagði Bevans.
Bevans sagði í vitnastúkunni að hún hafi gert myndbandið vegna þess að hún væri reið út í Talley og vildi fá viðbrögð frá honum. Hélt hún því fram að Talley hafi verið sá sem drap Jodie.
Saksóknarar spurðu Bevans einnig um verkefnalista sem hún skrifaði sem innihélt setninguna: „Kill Jodie,“ eða Drepa Jodie. Bevans bar því við að hún hefði verið undir áhrifum fíkniefna þegar hún skrifaði listann.
Refsing verður ákvörðuð um miðjan júní.