Talið er öruggt að klakarnir hafi losnað af flugvél sem flogið var yfir svæðið og er málið í rannsókn hjá bandarískum flugyfirvöldum.
Atvikið átti sér stað á miðvikudagskvöld og segir Sabrina Gomez að þau hafi heyrt hvin í loftinu rétt áður en klakarnir lentu á þakinu. Einn var svo stór að hann gerði gat á þak hússins.
Atburðarásin náðist á eftirlitsmyndavél og eins og sjá má hér að neðan var fjölskyldunni eðlilega brugðið. Heimili fjölskyldunnar er á svæði þar sem mikið er um flugumferð og segir Sabrina að farþegaþota hafi einmitt verið í loftinu fyrir ofan húsið þegar klakarnir féllu á þakið.
Sabrina segir að fjölskyldan sé þakklát fyrir að ekki fór verr, enda sátu þau úti á verönd hússins þegar atvikið varð – örfáum metrum frá staðnum þar sem stærsti klakinn lenti.