Á laugardaginn aflýstu yfirvöld öllum flug- og lestaferðum til og frá Sanya að sögn BBC.
Til að ferðamenn fái að yfirgefa bæinn verða þeir að framvísa fimm neikvæðum sýnatökum á sjö dögum. Hótel í bænum hafa verið beðin um að veita gestum helmings afslátt af gistingu þar til aðgerðunum verður aflétt.
Kína er eina landið í heiminum sem heldur enn fast í svokallað núll-stefnu hvað varðar COVID-19. Af þeim sökum er gripið til sóttkvíar og einangrunar fólks auk stöðvunar samfélagsstarfsemi þegar smit kemur upp.
Landamæri landsins hafa að mestu verið lokuð síðan í ársbyrjun 2020 og það hefur að vonum haft mikil áhrif á ferðamannaiðnaðinn.