fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
Fókus

Hrafn droppaði skóla fyrir rokkið – „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 13. maí 2026 15:30

Hrafn Thoroddsen

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrafn Thoroddsen, tónlistarmaður, segir það forréttindi að fá að vera í hljómsveitinni Ensími með bestu vinum sínum en í ár eru þrjátíu ár liðin frá stofnun sveitarinnar. Í viðtali í hlaðvarpinu Popparasögur rifjar Hrafn upp feril sveitarinnar, samstarfið við Steve Albini, árin með Jet Black Joe, samstarfið með Helga Björns og Bubba og margt fleira.

„Þetta er það sem er svona, toppurinn á píramídanum fyrir mér sko,“ segir Hrafn um hljómsveitina Ensími sem var stofnuð árið 1996 í kjölfar þess að Jet Black Joe hætti störfum. Hrafn segir að tónlistarsköpunin hafi aldrei stoppað eftir að Jet Black Joe hætti.

„Ég hef alltaf haft þetta fyrir stefnu að mæta alltaf, allavega tvisvar í viku og gera tónlist,“ segir hann. „Svo á einhverjum tímapunkti þá bara rankar það við þér að þú ert bara kominn með eitthvað efni.“

Ensími vakti fljótt athygli og var lagið Atari af þeirra fyrstu plötu, Kafbátamúsík, valið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Aðeins ári eftir útgáfu fyrstu plötunnar fékk sveitin tækifæri til að vinna með heimsfræga upptökustjóranum Steve Albini, sem vann meðal annars með Nirvana og Pixies.

„Við gátum ekki sleppt þessu. Ég meina, hann er bara legend,“ segir Hrafn. Hann segir að Albini hafi aðeins haft stuttan tíma til ráðstöfunar og því hafi sveitin þurft að bregðast hratt við. Hljómsveitin hafði engin lög til að vinna með á þeim tímapunkti og þess vegna þurfti að vinna hratt. „Það var bara hent í plötu ári seinna. Bara take it or leave it.“

Droppaði skólanum og fór í rokkið

Áður en Ensími varð til hafði Hrafn slegið í gegn með Jet Black Joe aðeins nítján ára gamall.

„Þetta í rauninni varð þess valdandi að ég bara droppaði skólanum og fór í rokkið,“ segir hann og hlær. Hljómsveitin sló í gegn og varð ein allra vinsælasta hljómsveit landsins á stuttum tíma.

Jet Black Joe reyndi síðar fyrir sér erlendis en Hrafn segir tímasetninguna ekki hafa verið með sveitinni í liði. „Þessi bransi snýst líka svo rosalega mikið um tímasetningar og bara tímasetningar og heppni,“ segir hann og bætir við. „Ég held að við höfum kannski verið svona örlítið of seinir með þetta væb.“

Hann segist þó hafa ákveðið eftir að Jet Black Joe-ævintýrinu lauk að gera tónlistina aldrei að atvinnu. „Ég hef í rauninni aldrei unnið sem tónlistarmaður. Þetta hefur alltaf verið bara eitthvað svona hobbí,“ segir Hrafn.

Einu starfandi tónlistarmennirnir

Hrafn rifjar einnig upp COVID-árin þegar hann spilaði með Helga Björnssyni í þáttunum Heima með Helga, sem nutu gríðarlegra vinsælda á meðan samkomutakmarkanir stóðu yfir. „Við vorum í rauninni einu svona starfandi tónlistarmennirnir nánast á Íslandi,“ segir hann og bætir við að þeir hafi þurft að fara varlega svo verkefnið gæti haldið áfram. „Við vorum svolítið í bómull, en misstum ekki úr einn þátt,“ segir Hrafn.

Þrátt fyrir áratugi á sviði segir Hrafn að honum finnist enn erfitt að flytja eigið efni fyrir framan áhorfendur. „Ég á frekar erfitt með að spila live, mér finnst það óþægilegt,“ segir hann. Hann segir þó að spennan hverfi þegar tónleikarnir hefjist. „Maður er bara alveg baksviðs í einhverri taugahrúgu, en þegar maður fer á sviðið þá kemur einhver adrenalínsprauta í mann og þá fer bara allt í gang.“

Hrafn segist enn mæta reglulega í stúdíóið og vinna að nýrri tónlist. „Í staðinn fyrir að setjast í sófann og horfa á einhverja enn eina seríuna, þá fer ég í skúrinn og tek upp hljóðfærið,“ segir Hrafn sem gaf út sólóplötu fyrr á þessu ári. „Það er einhvern veginn mín þerapía.“

Hrafn hefur verið ásamt félögum sínum í Ensími að fagna 30 ára afmæli hljómsveitarinnar með nokkrum tónleikum að undanförnu og mun halda því áfram síðar á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram: „Mér þykir ekki vænt um þig“

Vikan á Instagram: „Mér þykir ekki vænt um þig“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Patrekur Jaime veltir Bakgarðshlaupinu fyrir sér – „Skárra að vera í Kóngsbakka í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga“

Patrekur Jaime veltir Bakgarðshlaupinu fyrir sér – „Skárra að vera í Kóngsbakka í Breiðholtinu að reykja krakk í tvo daga“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?

Leikstjórinn sakaður um að hafa notað andlit ungrar leikkonu í leyfisleysi – Er þetta sama manneskjan?
Fókus
Fyrir 6 dögum

Katrín Edda sagðist vera í sjokki: „Það er blóð í nærbuxunum“

Katrín Edda sagðist vera í sjokki: „Það er blóð í nærbuxunum“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða

Þessu lauk loks á endanum með þeim – Lögmaður Baldoni telur að um fullnaðarsigur sé að ræða
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð

Bonnie Tyler gekkst undir bráðaaðgerð