fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Carrick að fá starfið – Mæla með honum við Ratcliffe

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 13. maí 2026 15:13

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick er samkvæmt helstu miðlum að öllum líkindum að hreppa stjórastarfið hjá Manchester United til frambúðar.

Yfirmenn félagsins, eins og Omar Berrada framkvæmdastjóri og Jason Wilcox yfirmaður knattspyrnumála, eru sagðir ætla að mæla með Carrick við eigandann Sir Jim Ratcliffe á næstu dögum.

Carrick hefur stýrt United sem bráðabirgðastjóri frá því Ruben Amorim var rekinn í janúar og náð frábærum árangri. United hefur unnið tíu af fimmtán leikjum undir hans stjórn og tryggt sér sæti í Meistaradeildinni á ný.

Ekkert lið hefur tekið fleiri stig í ensku úrvalsdeildinni frá því Carrick tók við 13. janúar, en United hefur meðal annars unnið Arsenal, Manchester City, Chelsea og Liverpool á tímabilinu.

Carrick hefur einnig fengið mikið hrós innan félagsins fyrir vinnu sína með ungum leikmönnum og langtíma hugsun. Samkvæmt fréttum vilja margir leikmenn félagsins einnig sjá hann fá starfið til frambúðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt