fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Pressan

Þessu átti Trump ekki von á á fjöldafundi sínum – Myndband

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 25. ágúst 2021 06:01

Trump á fundinum í Alabama. Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn hélt Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, fjöldafund í Alabama. Þar gerðist svolítið sem hann á ekki að venjast og átti ekki neina von á. Áhorfendur púuðu á hann og gerðu grín að honum.

Ástæðan fyrir þessu var að Trump sagði: „Ég ráðlegg ykkur að láta bólusetja ykkur.“ Þetta fór greinilega ekki vel í áhorfendur sem tóku þessari ráðleggingu hans ekki vel og létu óánægju sína í ljós.

Deltaafbrigði kórónuveirunnar herjar af miklum þunga á Alabama og fleiri af hinum svokölluðu Suðurríkjum Bandaríkjanna. Stór hluti íbúa Alabama er efins um kosti þess að láta bólusetja sig gegn veirunni og það má greinilega heyra í myndbandinu hér fyrir neðan.

„Ég skil að þið njótið algjörs frelsis. Það geri ég og þið eigið að gera það sem þið viljið en ég ráðlegg ykkur að láta bólusetja ykkur. Ég lét bólusetja mig, það er gott, látið bólusetja ykkur,“ sagði hann og uppskar óánægju fundargesta.

Trump var bólusettur í kjölfar þess að hann veiktist af COVID-19 í október á síðasta ári.

Hann brást við óánægju fundargesta með því að segja að hann myndi verða fyrstur til að láta vita ef bóluefnið virki ekki.

Í Alabama eru 85% COVID-19 sjúklinga, sem liggja á sjúkrahúsum, óbólusettir og tilfellum fer fjölgandi hjá börnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
Pressan
Í gær

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið

Tíu ára drengur játar á sig morð: Var sjö ára þegar hann framdi voðaverkið
FréttirPressan
Fyrir 2 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta

Hluti af San Andreas misgenginu gæti verið að setja sig í stellingar fyrir jarðskjálfta
Pressan
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppgötvun í bandarískri herstöð

Óvænt uppgötvun í bandarískri herstöð
Pressan
Fyrir 3 dögum

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður

Loftsteinn á stærð við bíl þau rétt framhjá jörðinni – Uppgötvaðist bara tveimur dögum áður