fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Skuggi hneykslismála gerir Le Pen og flokki hennar erfitt fyrir – Óviðeigandi ummæli um sjálfsvíg

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 12. júní 2021 15:30

Marine Le Pen. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 20. júní ganga Frakkar að kjörborðinu og kjósa til héraðsstjórna. Rassemblement National, sem hét áður Front National, flokkur Marine Le Pen glímir við ýmis hneykslismál í aðdraganda kosninganna.

Margir frambjóðendur flokksins hafa komist í fréttirnar fyrir ummæli sem eru sögð vera ýmist óviðeigandi pólitískt séð eða beri merki kynþáttahaturs.

Stærstu mistökin í sögu flokksins gerði Julien Odoul, frambjóðandi í BourgogneFrancheComte, þegar hann gerði athugasemd við styrki sem franskir bændur fá. Hann var með forystu samkvæmt skoðanakönnunum en á kosningafundi kom hann með ummæli sem hafa farið illa í marga en þau tengjast sjálfsvígi bónda eins fyrir tveimur árum. „Ég vil gjarnan vita hvort bóndinn, sem hengdi sig á býli sínu, hafi notað franskt reipi,“ sagði hann að sögn hins vinstri sinnaða dagblaðs Libération.

Í Gironde hefur flokkurinn dregið til baka stuðning sinni við Marta Le Nair eftir að fram kom að hún hafði áður birt færslur á samfélagsmiðlum sem flokka má sem gyðingahatur. 2015 skrifaði hún að ef gyðingi sé heilsað með handbandi þurfi að muna eftir að skoða hvort maður sé enn með tíu fingur að því loknu.

Önnur mál sem hafa komið sér illa fyrir Le Pen og flokk hennar eru meðal annars í Creuse þar sem flokksmaður var nýlega dæmdur fyrir heimilisofbeldi og í Ardenna komst upp að einn frambjóðandi flokksins hafði gerst sekur um kynferðisbrot gegn börnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?