fbpx
Föstudagur 04.júlí 2025
Pressan

Kórónuveirusmitað belgískt heilbrigðisstarfsfólk beðið um að vinna áfram þrátt fyrir smit

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 27. október 2020 10:01

Sjúklingi sinnt á gjörgæsludeild. Mynd: EPA-EFE/STEPHANIE LECOCQ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heilbrigðisstarfsfólk í belgísku borginni Liége hefur verið beðið um að halda áfram störfum þrátt fyrir að það hafi greinst með kórónuveiruna sem veldur COVID-19. Um fjórðungur heilbrigðisstarfsfólks í borginni hefur að sögn greinst með veiruna.

BBC skýrir frá þessu. Fram kemur að tíu sjúkrahús hafi beðið starfsfólk, sem hefur greinst með veiruna en er einkennalaust, að halda áfram störfum.  Philippe Devos, formaður stéttarfélags heilbrigðisstarfsfólks, sagði í samtali við BBC að starfsfólkið eigi engra annarra kosta völ ef koma eigi í veg fyrir að sjúkrahúsin láti algjörlega undan álaginu. Hann játaði einnig að það sé augljós hætta á að starfsfólkið smiti sjúklinga af veirunni.

Kórónuveirufaraldurinn hefur lagst mjög þungt á Belgíu í haust, eins og hann gerði í vor, og er landið meðal þeirra landa sem einna verst hafa farið út úr faraldrinum. 11,5 milljónir búa í landinu en þar hafa 321.000 greinst með veiruna og tæplega 11.000 hafa látist.

Smitum hefur fjölgað svo mikið að hætta er á að sjúkrahús landsins yfirfyllist. Í síðustu viku sagði Frank Vandenbroucke, heilbrigðisráðherra, að smitin væru orðin svo mörg að hætta væri á að „flóðbylgja smita“ skelli á og að yfirvöld ráði ekki við hana.

Í gær sögðu embættismenn að hætta sé á að sjúkrahús landsins yfirfyllst á næstu tveimur vikum. Á hverjum degi, síðustu átta daga, hefur fjöldi innlagðra sjúklinga á gjörgæsludeildum tvöfaldast. Á sunnudag fyrir rúmri viku lágu 757 á gjörgæslu en síðasta sunnudag voru þeir orðnir 4.827.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið

Svona tryggir þú að taskan þín komi alltaf fyrst á farangursfæribandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf

Fundu faldar myndavélar í Airbnb-íbúðinni – Voru mynduð þegar þau stunduðu kynlíf
Pressan
Fyrir 2 dögum

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim

Milljarðaverðmæti í gulli eru geymd undir New York – Nú þurfa eigendurnir kannski að flytja það heim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi

Kona lést eftir að hún festist í fatasöfnunargámi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann

Borðaðu spergilkál og hreinsaðu heilann
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum

Þess vegna á aldrei að grilla kjöt um leið og það er tekið úr ísskápnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?

Hvort er betra að ganga eða hlaupa í rigningu til að verða ekki eins blautur?
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?

Ráðgátan í Thuleherstöðinni – Hvað varð um Jytte?