Uppskriftin í dag er óður til sumarsins. Því hvað er sumarlegra en sítrónur?
Hráefni
- 500 g Spaghetti
- 8 stk Hvítlauksrif
- Safi úr fjórum sítrónum og börkur af einni sítrónu
- 500 ml Rjómi
- 2 msk Rjómaostur
- 10 g Steinselja
- 100 g Parmesan ostur
- 1 stk Salt eftir smekk
- 1 stk Pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningu á pakkningu.
- Hitið olíu á pönnu og léttsteikið hvítlauk. Passið að hann brenni ekki.
- Bætið sítrónusafanum út og láta malla örlítið en ekki sjóða.
- Hellið rjómanum út í ásamt rjómaosti og láta malla.
- Bætið við parmesanosti og steinselju blanda vel saman.
- Hellið vatninu af pastanum og blandið skvettu af því því saman við sósuna.
- Berið fram strax og piprið hressilega.
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.