fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Matur

Ítölsk tortellini tómatsúpa

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 27. október 2023 10:00

Mynd: Heimkaup

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hér er á ferðinni matarmikil súpa sem vakti mikla lukku hjá heimamönnum enda dásamlega bragðgóð og bæði einföld og fljótleg í gerð.

Hráefni

  • 5 hvítlauksrif, pressuð
  • 1 msk Olía
  • 1 l Tómatsafi
  • 2 stk Kjúklingakraftur
  • 400 g Tómatsteningar
  • 250 ml Rjómi
  • 20 g Basilíka
  • 60 g Smjör
  • 250 g Osta tortellini
  • 250 ml Vatn

Leiðbeiningar

  1. Steikið hvítlaukinn upp úr olíunni þar til hvítlaukurinn hefur brúnast lítillega en passið að hann brenni ekki.
  2. Blandið kjúklingakrafti og vatni.
  3. Blandið tómatsafa, kjúklingakrafti og tómötunum saman við. Hitið að suðu og leyfið þessu að malla í 15-20 mínútur.
  4. Bætið þá basilíku og tortellini saman við og sjóðið í 5-8 mínútur.
  5. Bætið smjöri og rjóma hægt úti og hrærið stöðugt yfir lágum hita þar til súpan er orðin heit en látið hana alls ekki sjóða.
  6. Setjið súpuna í skálar, rífið parmesan yfir og berið fram með góðu salati og/eða brauði.

Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
25.10.2023

Spaghetti með hvítlauk chilí og valhnetupestói

Spaghetti með hvítlauk chilí og valhnetupestói
Matur
24.10.2023

Hunangs-BBQ kjúklingur með grilluðu grænmeti og geggjuðum sósum

Hunangs-BBQ kjúklingur með grilluðu grænmeti og geggjuðum sósum
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa
Matur
18.10.2023

Taco kjúklingasalat

Taco kjúklingasalat