Með þessum rétti er ómissandi að hafa cous cous, hrísgrjón eða bygg því þau verða svo góð þegar þeim er blandað við sósuna sem er á kjúklingum. Ásamt því er gott af hafa salat því það er hollt og gott fyrir okkur öll.
Hráefni
- 700 g Kjúklingalæri
- 150 g Mango Chutney
- 200 g Kókosmjólk
- 0.5 msk Karrý
Leiðbeiningar
- Skerið kjúklingalæri í munnbita.
- Setjið á heita pönnu, kryddið með karrý og steikið í 8 mínútur
- Blandið saman kókosmjólk og mango chutney. Ég set þetta saman í stóra krukku og hristi saman.
- Hellið þessu yfir pönnuna með kjúklingnum og leyfið að malla með loki á í 7 mínútur
Þú getur keypt allt sem þarf í þessa uppskrift og annað fyrir vikuna á Heimkaup, og fengið vörurnar sendar heim eða í vinnuna, einfalt og þægilegt.