fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026

Björg Magnúsdóttir

Orðið á götunni: Hægri miðjumeirihlutinn boðar gott fyrir samfélagið og borgarbúa

Orðið á götunni: Hægri miðjumeirihlutinn boðar gott fyrir samfélagið og borgarbúa

Eyjan
Fyrir 1 viku

Nú hefur Hildur Björnsdóttir, ásamt Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar, og Einari Þorsteinssyni, oddvita Framsóknar, myndað nýjan meirihluta í Reykjavík og kosið að fara þá leið að mynda meirihluta hægri- og miðjuafla í stað þess að mynda hreina hægri stjórn með Miðflokknum, sem er yst til hægri á hinu pólitíska litrófi. Orðið á götunni er að Lesa meira

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Björg Magnúsdóttir: Ekki hlutverk borgarfulltrúa að stækka selalaugina eða gefa út afmælisleiðbeiningar

Eyjan
Fyrir 4 vikum

Hlutverk borgarfulltrúa er ekki að finna sér einatt ný og skemmtileg verkefni eins og að stækka selalaugina og leiðbeina með afmælisveislur. Borgin hefur ákveðnar grunnskyldur og á að einbeita sér að því að uppfylla þær með sóma áður en farið er að huga að gæluverkefnum. Sveitarstjórnarmál snúast fyrst og fremst um forgangsröðun. Hvernig á að Lesa meira

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Björg Magnúsdóttir: Getum ekki bara gert Reykjavík að einhverri bandarískri bílaborg

Eyjan
Fyrir 4 vikum

Við getum ekki gert Reykjavík bara að einhverri bandarískri bílaborg. Það tók mörg ár að gera Samgöngusáttmálann að veruleika, fá alla bæjarstjóra höfuðborgarsvæðisins, auk þriggja ráðherra til að ná þessu samkomulagi. Samgöngusáttmálinn er ekkert fullkominn en hann er til staðar og hann er fjármagnaður. Að hverfa frá honum myndi þýða margra ára töf frá bráðnauðsynlegum Lesa meira

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Björg Magnúsdóttir: Kostnaður við íþróttir og frístundir barna veldur stéttaskiptingu

Eyjan
Fyrir 4 vikum

Reykjavík gerir vel í því að bjóða hæsta frístundastyrkinn, 70 þúsund krónur á barn. Mikill og vaxandi kostnaður við íþróttir veldur stéttaskiptingu þar sem börn efnaminni foreldra sitja á hakanum. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar. Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum: Eitt sem margir Lesa meira

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Fréttir
07.05.2026

Þriðja sætið er baráttusætið hjá Viðreisn í Reykjavík. Í þriðja sætinu er Þorvaldur Davíð Kristjánsson, leikari og hagfræðingur og Þróttari. Nánari tenging skóla og íþrótta-/frístundastarfs er æskileg og íþróttastarfið er mikilvægt t.d. hvað varðar inngildingu í íslenskt samfélag fyrir þá sem hingað flytjast. Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Lesa meira

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Björg ekki spennt fyrir að mynda meirihluta með Samfylkingunni sem er komin í þrönga stöðu

Eyjan
06.05.2026

Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík segir í nýjum pistli á Facebook að í ljósi þess hversu illa hafi verið staðið að viðhaldi skólabygginga í borginni sé Samfylkingin ekki spennandi valkostur fyrir hugsanlegt meirihlutasamstarf. Hún útilokar ekki beinlínis slíkt samstarf en segir það ekki sinn fyrsta valkost. Björg segist hafa ákveðið að bjóða Lesa meira

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Oddvitar í sviðsljósi

EyjanFastir pennar
03.05.2026

Sú sem þetta skrifar hefur á undanförnum vikum, oftar en einu sinni, heyrt stjórnmálaskýrendur segja að Viðreisn muni mjög líklega verða í oddastöðu í borginni eftir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Oddviti Viðreisnar í borginni Björg Magnúsdóttir virðist að eðlisfari vera lífsglöð manneskja. Nú er hún enn brosmildari en áður á myndum sem birtast af henni í Lesa meira

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun

Orðið á götunni: Viðreisn í lykilstöðu samkvæmt nýrri könnun

Eyjan
25.04.2026

Viðreisn fengi þrjá borgarfulltrúa kjörna og væri í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun í borginni ef úrslit kosninganna yrðu í samræmi við nýja könnun Maskínu. Viðreisn gæti myndað meirihluta með Sjálfstæðisflokki og Miðflokki með samtals 12 borgarfulltrúa eða þá valið samstarf við vinstri flokka og myndað 12 manna meirihluta með Samfylkingu, Vinstrinu og Pírötum. Orðið á götunni Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af