fbpx
Föstudagur 12.júní 2026
433Sport

Herða tökin gegn þeim sem nota ólöglega sjónvarpsþjónustu – Gríðarleg aukning á síðustu árum

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sky hefur hafið harða herferð gegn ólöglegu sjónvarpsstreymi og sent hundruðum einstaklinga viðvörunarbréf vegna notkunar á svokölluðum „dodgy box“ og breyttum Amazon Fire Stick tækjum.

Bréfin hafa verið send til notenda á Írlandi og gefur Sky viðkomandi einstaklingum tvær vikur til að skriflega staðfesta að þeir muni hætta að streyma efni ólöglega. Ef þeir svara ekki eða halda áfram notkuninni gæti málið farið í lögfræðilegt ferli.

Málið kemur í kjölfar úrskurðar írskra dómstóla frá því í mars þar sem Sky fékk aðgang að nöfnum og heimilisföngum yfir 300 einstaklinga sem höfðu greitt fyrir ólöglegt IPTV-efni í gegnum Revolut.

Sky segir að um sé að ræða áskriftir að þjónustum sem veita aðgang að Sky-rásum og öðru sjónvarpsefni án löglegra áskrifta.

„Þetta er ólöglegt þar sem Sky á réttinn að þessu efni,“ sagði talsmaður fyrirtækisins við Irish Times.

Fyrirtækið hefur þegar sent fyrstu 200 viðvörunarbréfin og útilokar ekki frekari aðgerðir, þar á meðal skaðabótakröfur og innheimtu lögfræðikostnaðar.

Ólöglegt streymi á ensku úrvalsdeildinni og öðru íþróttaefni hefur aukist mikið undanfarin ár og sjónvarpsstöðvar hafa í auknum mæli reynt að stemma stigu við þróuninni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu

Ruben Amorim gæti verið að landa einu stærsta starfi í Evrópu
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“

Keane og Wright agndofa yfir vinnuaðstöðu sinni í Bandaríkjunum – „Þetta er magnað“
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir

KR að selja Cosic til Noregs – Kaupverðið sagt vera í kringum 80 milljónir
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“

Saumað að honum í beinni: Var rekinn fyrir dónaleg skilaboð til samstarfskvenna – „Ég hef tekið út refsingu mína“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton

Carrick byrjaður að skoða framherja Everton
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern

PSG stórhuga og vilja einn besta leikmann Bayern