fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Þetta eru vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. mars 2026 14:26

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pizza er af mörgum talin upprunalega „take-away“ máltíðin. Allt frá því að Jakob Magnússon kynnti pizzuna á veitingastað sínum Horninu, Hafnarstræti 15 í Reykjavík,  árið 1979 hefur neysla Íslendinga farið vaxandi.

Í dag er pizza næstvinsælasti rétturinn sem Íslendingar panta heim samkvæmt nýjustu tölum frá Wolt. Tölurnar byggja á gögnum frá meira en 400 veitingastöðum á Íslandi. Á síðasta ári einu saman afhentu sendlar Wolt meira en 160.000 pizzur hér á landi.

„Ég leyfi mér að segja að enginn þekki íslenska pizzumarkaðinn betur en við. Alls staðar þar sem við störfum er að minnsta kosti einn staður sem selur pizzur. Við getum nú í fyrsta sinn birt lista yfir vinsælustu áleggin og samsetningarnar í landinu, sem eru blanda af hefðbundnum ítölskum bragðtegundum og nýjum útfærslum,“ segir Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi í tilkynningu.

Jóhann Már Helgason, forstöðumaður viðskiptastýringar hjá Wolt á Íslandi.

Pepperóní á toppnum – Hot Honey sækir í sig veðrið

Á toppi listans situr pepperóní sem afgerandi sigurvegari. Klassísk álegg standa enn sterkar en listinn sýnir einnig hversu fjölbreytt úrvalið er orðið, allt frá pepperóní og nautakjöti til Parma-skinku og diavola.

„Samhliða hefðbundnum kostum eru nýrri útgáfur eins og rækjur, geitaostur og ekki síst hot honey að ryðja sér til rúms. Þá fjölgar einnig glútenlausum, vegan- og grænmetisréttum. Það er nánast hægt að fullyrða að allir finni pizzu við sitt hæfi. Sjálfur vel ég pepperóní, rjómaost og papriku,“ segir Jóhann og bætir við: „Svo er ég einn af þeim sem finnst ananas eiga heima á pizzu annað slagið.“

Ananas heldur áfram að skipta fólki í fylkingar

Þótt ananas hafi rétt svo náð topp tíu í Noregi, er hann meðal fimm vinsælustu áleggja hér á landi. Óvíst er hvort það tengist ummælum Guðna Th. Jóhannessonar, fyrrverandi forseta, árið 2017 þegar hann ræddi um að banna ananas á pizzur.

10 vinsælustu pizzaáleggin á Íslandi í take-away:

  1. Pepperóní
  2. Margherita (Ostur og sósa)
  3. Nautakjöt
  4. Ananas
  5. Diavola
  6. Beikon
  7. Kjúklingur
  8. Sveppir
  9. Hot Honey
  10. Parma
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Í gær

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Í gær

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Í gær

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 2 dögum

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir

Svona telur Róbert að borgin gæti sparað mörg hundruð milljónir