fbpx
Föstudagur 22.maí 2026
Fréttir

Þetta voru meðaleinkunnir stúdenta skólaársins 2023-2024 við lok grunnskóla – Sundurliðað eftir einstaka skólum

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. maí 2026 11:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mennta- og barnamálaráðherra hefur birt skýrslu um frammistöðu nemenda úr einstökum grunnskólum á lokaprófum í framhaldsskólum, en skýrslan var unnin að beiðni fráfarandi þingmanns Sjálfstæðisflokks og verðandi bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Vilhjálms Árnasonar.

Fram kemur í skýrslunni að af þeim nemendum sem luku grunnskóla og hófu nám á almennri bóknámsbraut í framhaldsskóla árið 2021 hafi 58 prósent þeirra útskrifast þremur árum síðar, eða skólaárið 2023-2024. Tekið er fram að tilskilinn tími framhaldsskólanáms sé ekki skilgreindur í aðalnámskrá og að lengd náms fari eftir brautum, réttindum og hæfniþrepum sem viðkomandi nám er skilgreint út frá.

Upplýsingar um meðalárseinkunnir framhaldsskólanemenda liggja ekki fyrir í ráðuneytinu svo skýrslan byggir á upplýsingum um lokaeinkunnir framhaldsskólanemenda. Meðal annars birtist í skýrslunni yfirlit sem sýnir meðaleinkunnir úr einstökum grunnskólum árið 2021, en þarna er aðeins horft til einkunna þeirra nemenda sem fóru svo í framhaldsskóla og kláruðu á þremur árum. Með öðrum orðum vantar inn í þessa mælingu nemendur sem ekki fóru í framhaldsskóla, þá sem kláruðu á skemmri tíma en þremur árum og þá sem kláruðu á lengri tíma en þremur árum.

Meðaleinkunnir sem gefnar eru upp í töflunni hér að neðan byggja á bókstafseinkunnum í grunnskóla sem er breytt yfir í tölugildi á bilinu 1-4. Hæsta einkunn A fær tölugildið 4; B+ fær tölugildið 3,75; B fær tölugildið 3; C+ fær tölugildið 2,75; C fær tölugildið 2 og D fær tölugildið 1. Þessar meðaleinkunnir byggja ekki á samræmdu námsmati grunnskóla heldur námsmati einstakra skóla og eru því, að sögn ráðherra, ekki til þess fallnar að gera samanburð á námsárangri á milli skóla.

Eins má í skýrslunni sjá frammitstöðu nemenda tiltekinna grunnskóla á lokaprófi í framhaldsskóla, en þær tölur eru þó þeim galla haldnar að útskriftarárgangar grunnskóla eru misstórir og börnin enda svo með að dreifa sér á marga framhaldsskóla. Það eru helst safnskólarnir sem birtast í því yfirliti enda fara gjarnan margir nemendur úr þeim skólum í sama framhaldsskólann. Þar er má þó lesa áhugaverðar upplýsingar, svo sem að nemendur í Garðaskóla eru áberandi í Verzlunarskóla Íslands og Fjölbrautarskólanum í Garðabæ og nemendur úr Hagaskóla eru áberandi í Menntaskólanum í Reykjavík.

Í samantekt um skýrsluna kemur fram að einn helsti áhrifaþáttur á frammistöðu nemenda er menntunarstig og félagsleg staða foreldra.

Eins kemur fram í skýrslunni hversu margir nemendur sem útskrifuðust úr grunnskóla árið 2021 luku framhaldsskólanámi skólaárið 2023-2024. Þegar þetta er borið saman við heildarstærð árgangsins í hverjum skóla fyrir sig birtist töluverður munur á milli skóla. Sem dæmi luku 32 nemendur grunnskólanámi við Fellaskóla árið 2021 en aðeins 8 þeirra útskrifuðust úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024, eða um 25 prósent nemenda. Hjá Hagaskóla luku 206 nemendur 10. bekk árið 2021 og 148 þeirra luku framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eða tæp 72 prósent nemenda. Hjá Réttarholtsskóla luku 129 nemendur 10. bekk árið 2021 og 105 þeirra luku framhaldsskólanámi skólaárið 2023-2024 eða rétt rúmlega 81 prósent nemenda. Hjá Árbæjarskóla luku 105 nemendur 10. bekk árið 2021 og 63 þeirra útskrifuðust úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eða 60 prósent nemenda.

Hjá Kópavogsskóla luku 30 nemendur 10. bekk árið 2021 og af þeim útskrifuðust 20 úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eða tæp 67 prósent.  Hjá Lindaskóla luku 51 nemandi 10. bekk árið 2021 og af þeim útskrifuðust 28 úr framhaldsskóla skólaárið 2023-2024 eða um 55 prósent.

Skýrsluna má lesa hér

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gabriel Douane dæmdur í fangelsi – Braut augntóft í tveimur mönnum

Gabriel Douane dæmdur í fangelsi – Braut augntóft í tveimur mönnum
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“

Andrea segir hundaeigendur gefa of mikið nammi og það hafi vond áhrif – „Þetta eru ótrúlega klár dýr. Þau eru fljót að spila á okkur“
Fréttir
Í gær

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis
Fréttir
Í gær

Trump og Netanjahú sagðir hafa átt í hörðum skoðanaskiptum um næstu skref í Íran

Trump og Netanjahú sagðir hafa átt í hörðum skoðanaskiptum um næstu skref í Íran