fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Tekist á um hvort áfengisvandi teljist til veikinda í augum Vinnumálastofnunar

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að vera sagt upp störfum vegna áfengisvanda jafngildir því ekki að vera sagt upp störfum vegna veikinda í augum Vinnumálastofnunar. Þetta var niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála í úrskurði sem féll í október en var birtur nýlega.

Málið varðaði mann sem hafði verið sagt upp störfum eftir að hann mætti ekki til vinnu dag einn í ágúst á síðasta ári. Tilkynnti maðurinn hvorki veikindi né forföll til vinnuveitanda og var í kjölfarið sagt upp störfum.

Þá leitaði hann á náðir Vinnumálastofnunar sem ákvað að láta hann sæta tveggja mánaða biðtíma þar sem starfslok hans hefðu átt rætur að rekja til hans eigin sakar.

Maðurinn sætti sig ekki við þá niðurstöðu og kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndarinnar. Þar rakti hann að hann hefði verið veikur vegna áfengisvanda, ekki mætt til vinnu í einn dag og verið sagt upp störfum. Hann hafi verið í erfiðum aðstæðum á þessum tíma og meðal annars þurft að leggjast inn á spítala. Síðar hafi hann farið í meðferð og honum hafi tekist að vera edrú og í virkum bata mánuðum saman. Vinnumálastofnun kenni honum um uppsögnina þar sem hann hafi ekki hringt sig inn veikan í vinnuna. Maðurinn sagðist skilja sjónarmið stöfunarinnar en benti á að þessi vanræksla ætti rætur að rekja til veikinda hans frekar en til kæruleysis eða ásetnings.

Alkóhólismi sé viðurkennt heilsubundið ástand og á þessum tíma hafi hann verið óvinnufær vegna veikinda en svo strax í kjölfarið leitað sér aðstoðar og unnið að bata. Samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar megi ekki leggja biðtíma á einstakling ef orsök uppsagnar tengist veikindum eða öðrum óviðráðanlegum aðstæðum.

Rakti maðurinn að hann væri með börn á framfæri og að tveggja mánaða biðtími myndi setja fjölskyldu hans í mjög erfiða fjárhagsstöðu. Óskaði hann eftir endurskoðun og að biðtíminn yrði felldur niður.

Vinnumálastofnun rakti að tilgangur atvinnuleysistryggingar væri að tryggja þeim sem hafa misst starf tímabundna fjárhagsaðstoð. Almennt þurfi þeir sem verða valdir að sinni eigin uppsögn að færa fram skýringar sem flokkast sem gildar ástæður í skilningi laganna. Ein meginskylda launamanna sé að tilkynna vinnuveitanda þegar þeir eru ófærir til að mæta til vinnu. Maðurinn í þessu máli hafi ekki hringt sig inn veikan. Manninum hefði mátt vera ljóst að hann kynni að missa starf sitt ef hann hætti að mæta án þess að tilkynna fjarveru og ástæðu fyrir þeim. Taldi Vinnumálastofnun að áfengisvandi réttlætti ekki að maðurinn hafi hætt að mæta enda hefði hann mátt vita að slíkt kynni að draga dilk á eftir sér.

Úrskurðarnefndin taldi ljóst að maðurinn hefði misst starf sitt af ástæðu sem hann átti sjálfur sök á og staðfesti því ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði

Ákærður fyrir nauðgun í Hafnarfirði
Fréttir
Í gær

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“

Misjafnir dómar um kannabis-gistiheimilið í Þverholti: „Það hefði verið betri kostur að sofa í bílnum“
Fréttir
Í gær

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta

Ari telur rökréttast að Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur ræði saman um myndun meirihluta
Fréttir
Í gær

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“

Lögreglan svarar gagnrýni sjónarvottar vegna alvarlegs atviks í kirkjugarði – „Beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn“
Fréttir
Í gær

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám

Þuríður gagnrýnir hvatningu HÍ til fólks um að fara í ökukennaranám