fbpx
Miðvikudagur 20.maí 2026
Fréttir

Meintur þjófnaður á fermingarpeningum kom til kasta umboðsmanns Alþingis

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. maí 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Umboðsmaður Alþingis gerir ekki athugasemdir við þá niðurstöðu ríkissaksóknara að fella niður rannsókn á meintum þjófnaði á peningum sem barn fékk í fermingargjöf. Segist umboðsmaður ekki geta andmælt þeirri niðurstöðu ríkissaksóknara að það sé ekki rétt hjá föður barnsins að óyggjandi sannarnir séu fyrir því að tiltekinn aðili hafi stolið peningunum.

Faðirinn kvartaði til umboðsmanns yfir staðfestingu ríkissakóknara á þeirri ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að fella rannsókn málsins niður.

Samkvæmt kvörtun föðurins taldi hann að fyrir lægju sannanir um þjófnaðinn, sem hafnar væru yfir vafa. Vísaði faðirinn meðal annars til þess að bankayfirlit sýndi að umræddir fjármunir hafi ekki verið lagðir inn á bankareikning barnsins.

Í kjölfar kvörtunar föðurins fékk umboðsmaður aðgang að öllum gögnum málsins frá ríkissaksóknara.

Svigrúm

Umboðsmaður segir í sinni niðurstöðu að Alþingi hafi með lagasetningu falið lögreglu og handhöfum ákæruvalds að leggja mat á ýmsa þætti sem snerti rannsókn sakamála og meðferð þeirra að öðru leyti. Sé það þannig til að mynda lagt í dóm þessara stjórnvalda hvort kæra gefi nægt tilefni til rannsóknar, hvort þegar hafinni rannsókn skuli hætt eða mál rannsakað frekar eftir að lögregla hafi lokið henni. Með sama hætti sé handhöfum ákæruvalds falið að leggja mat á það í ljósi þeirra upplýsinga og gagna, sem aflað hafi verið við rannsókn sakamáls, hvort efni séu til að gefa út ákæru á hendur sakborningi, fella mál hans niður eða eftir atvikum ljúka því með öðrum hætti. Við mat á þessu hafi handhafar ákæruvalds talsvert svigrúm.

Umboðsmaður segir að vegna þessa svigrúms beinist athugun embættisins samkvæmt lögum, í málum sem þessum, einkum að því að kanna hvort niðurstaða í máli sé reist á málefnalegum sjónarmiðum, mat á gögnum máls sé ekki bersýnilega óforsvaranlegt sem og hvort réttra málsmeðferðarreglna hafi verið gætt. Umboðsmaður sé hins vegar almennt ekki í aðstöðu til að leggja sjálfstætt mat á hvort efni séu til að rannsaka mál frekar eða gefa út ákæru í máli með vísan til þess að það sé nægilegt eða líklegt til sakfellis út frá fyrirliggjandi sönnunargögnum.

Var þeim stolið?

Umboðsmaður segir að í ákvörðun ríkissakóknara komi meðal annars fram að í skýrslu aðilans sem kærður var fyrir þjófnað á peningunum hafi hann sagst hafa tekið við þeim og að viðkomandi og faðirinn hafi notað hluta þeirra til að greiða fyrir tilgreinda þjónustu. Hafi sú upphæð síðar verið endurgreidd. Í samantekt lögreglu um skýrslutökuna segi jafnframt að aðilanum sem var kærður hafi ekki verið falið að leggja fjármunina inn á banka eins og haldið hefði verið fram heldur hefði faðirinn eða móðir barnsins ætlað að gera það.

Í ákvörðun ríkissaksóknara segi enn fremur að engin gögn hafi verið lögð fram af hálfu föðurisns vegna hins meinta þjófnaðar, fyrir utan skjáskot af samskiptum og millifærslu. Að mati ríkissaksóknara sé ekkert fram komið í gögnum málsins sem styðji framburð föðurins gegn neitun þess aðila sem kærður var fyrir þjófnað á fermingarpeningunum. Af þeim sökum væri ekki grundvöllur til að halda rannsókn málsins áfram að svo stöddu og því ekki efni til annars en að staðfesta hina kærðu ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Að teknu tilliti til þessa telur umboðsmaður ljóst að ákvörðun lögreglustjóra hafi verið staðfest með vísan til þess að frekari rannsókn væri ekki til þess fallin að varpa frekara ljósi á atvik málsins og að sönnunarstaða þess væri með þeim hætti að meðferð þess yrði ekki haldið áfram. Umboðsmaður segir að gögn málsins og ákvörðun ríkissaksóknara gefi ekki tikefni til að gera athugasemdir við þá ákvörðun ríkissaksóknara að staðfesta ákvörðun lögreglustjóra um að hætta rannsókn málsins.

Lætur umboðsmaður þar með lokið athugun sinni á þessar kvörtun föður fermingarbarns yfir því að rannsókn á meintum þjófnaði á peningum, sem barn hans fékk í fermingargjöf, hafi verið hætt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“

Andartaki eftir að hún lagði bílnum sínum hófst martröðin – „Ég er að deyja“
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“

„Seðlabankinn má ekki standa einn í baráttunni“
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Móðir barns sem varð fyrir ofbeldi á leikskóla tjáir sig – „Kona sem átti að passa litla strákinn minn brást honum hryllilega“

Móðir barns sem varð fyrir ofbeldi á leikskóla tjáir sig – „Kona sem átti að passa litla strákinn minn brást honum hryllilega“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Dæmdur í fangelsi fyrir að ryðjast í heimildarleysi inn í hjólhýsi í Reykjavík

Dæmdur í fangelsi fyrir að ryðjast í heimildarleysi inn í hjólhýsi í Reykjavík