

Viðbrögð aðila vinnumarkaðarins við hækkun peningastefnunefndar Seðlabankans, í morgun, á stýrivöxtum hrannast inn. Meðal þeirra sem gagnrýna hækkunina er Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Halla segir að tvennt sem eigi sér stað sé sláandi í ljósi stýrivaxtahækkunarinnar sem skilji einnig eftir aðkallandi spurningu.
Halla segir í pistli á Facebook að það sem sé sláandi eigi sér nú stað á sama tíma og stýrivextirnir séu hækkaðir:
„1. Fréttir berast af ofurhagnaði bankanna – svo miklum að því má jafna við að hver einasti fullorðni Íslendingur sé að greiða bönkunum um 320 þúsund krónur á ári í hagnað.
2. Uppgjör matvörurisanna sýnir meiri framlegð og greining Seðlabankans frá í apríl dregur fram þá staðreynd að sveiflur krónunnar skila sér að jafnaði eingöngu í hækkun á matvöru, sjaldan lækkun.“
Halla segir Seðlabankann spá því nú að forsendur kjarasamninga bresti í haust en leggi hart að stéttarfélögum að segja þeim ekki upp. Vel megi hugsa sér að skapa forsendur fyrir slíku, en það verði þó aldrei nema að fyrirtæki axli sína ábyrgð og láti af óþörfum verðhækkunum. Þar dugi ekki tóm fyrirheit, verkalýðshreyfingin þurfi að hafa eitthvað í hendi um það:
„Hávaxtastefnan hefur valdið samdrætti, atvinnuleysi og sligandi húsnæðiskostnaði. Fórnarkostnaðurinn er mikill, en hún er orðin aðkallandi spurningin um hinn raunverulega ávinning.“