

Framkoma margra Miðflokksmanna í kosningabaráttunni stendur í Sjálfstæðismönnum við myndun meirihluta. Almennt er oddvitanum Ara Edwald treyst en óvissa er hvort hann, sem óreyndur stjórnmálamaður, hafi stjórn á sínu fólki.
Fastlega er búist við því að eftir mikinn kosningasigur í borgarstjórnarkosningunum á laugardag myndi Sjálfstæðismenn meirihluta með annað hvort Miðflokknum eða Framsóknarflokknum og Viðreisn.
Að sögn heimildarmanna innan Sjálfstæðisflokksins stendur þó framkoma Miðflokksmanna í kosningabaráttunni í Sjálfstæðismönnum. Ekki aðeins Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa sem gengu til liðs við Miðflokkinn, heldur einnig annarra.
Almennt ríki traust í garð Ara Edwald, oddvita flokksins, en stóra spurningin sé hvort hann hafi nógu mikla stjórn á sínu fólki. Hafa ber í huga að Ari er alveg óreyndur í stjórnmálum og Miðflokkurinn hefur reynst vera óheflað afl og minni agi innan þess flokks en flestra annarra.
Meðal þess sem stendur í Sjálfstæðismönnum er grein Katrínar Magnúsdóttur í Grafarvogs- og Árbæjarblaðinu þar sem hún sakaði Björn Gíslason, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um óheilindi.

Í greininni sagði Katrín, sem skipar 8. sæti á lista Miðflokksins, Björn hafa sýnt hræsni varðandi skipulagsmál, bílastæðamál og borgarlínu. Sagði hún að Björn hefði samþykkt þrengingar á Bæjarhálsi sem var rangt. Í sömu grein réðist Katrín á Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og sagði hana hafa gengið í lið með Samfylkingunni um að fækka bílastæðum í borginni.
Katrín leiðrétti seinna það að Björn hefði stutt þrenginguna en aðeins í stuttri færslu á Facebook.
Þá er það einnig grein Ólafs Kr. Guðmundssonar, sem er titlaður varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins er genginn í Miðflokkinn og hefur verið í framboði fyrir hann. Hann skrifaði harðorða grein gegn Hildi og Jóni Skaftasyni eiginmanni hennar í Morgunblaðinu sem fór mjög illa í Sjálfstæðismenn.

Reifaði Ólafur yfirtöku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Skeljungi undir félaginu Streng Holding, undir framkvæmdarstjórn Jóns. Hildur hafi tekið þátt í að afgreiða samninga um bensínstöðvarlóðir. Sagði Ólafur Hildi hafa verið vanhæfa og að málið bendi til ósanninda og óheilinda.
Heimildarmenn DV segja að Sjálfstæðismenn líti á oddvitana Ara, Einar Björgu sem fólk sem hægt sé að vinna með. Stóra spurningin sé hins vegar hvort Ari hafi stjórn á fólki neðar á listanum. Hugsanlega sé það betra til lengri tíma litið að hafa Miðflokkinn í minnihluta. Engin leið sé að vita hvort allir verði enn þá sáttir þegar líður á kjörtímabilið.