

Sigrid Foss sem er yfirleitt kölluð Sigga hefur fengið umsókn sína um íslenskan ríkisborgararétt samþykkta hjá Útlendingastofnun. Sigga er frá Noregi en hefur búið á Íslandi síðan árið 1977 og sté nýlega fram og lýsti kröfum stofnunarinnar um að hún sannaði búsetu sína hérlendis á þessu tímabili með því að meðal annars framvísa kvittunum.
Sigga sagði frá þessu nýlega í viðtali á Bylgjunni. Hún kynntist íslenskum manni við nám í Danmörku og flutti með honum hingað til lands og hefur búið hér síðan.
Sagði hún í viðtalinu að lengi vel hefði hún ekki sótt um íslenskan ríkisborgararétt þar sem áður hefði hún þurft að breyta nafni sínu. Síðar hefðu norskar reglur um tvöfaldan ríkisborgararétt staðið í vegi fyrir því, þar til þeim var breytt fyrir nokkrum árum.
Sagðist Sigga hafa sótt um árið 2024 til að geta kosið í Alþingiskosningunum það ár en því náði hún ekki og bjóst raunar ekki við að ferlið tæki svona langan tíma. Útlendingastofnun fór fram á að hún sannaði búsetu sína og sagði að það gæti hún gert með til að mynda greiðslukortayfirlitum og ákvað hún að sanna búsetuna með því að framvísa yfirliti yfir viðskipti sín við Bónus. Þótti Siggu undarlegt að upplýsingar um hana hjá hinu opinbera dygðu ekki til en á Íslandi hefur hún meðal annars stofnað fyrirtæki og eignast bæði börn og barnabörn.
Vefmiðill Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Bærinn okkar greindi síðan frá því nú fyrir stundu að Sigga hefði fengið tölvupóst þar sem henni var tilkynnt að umsókn hennar um íslenskan ríkisborgararétt hefði verið samþykkt.
Sigga er á 20. sæti lista flokksins í Hafnafirði í kosningunum eftir 10 daga. En í frétt Bæjarins okkar má sjá myndband af henni lesa upp tölvupóst með tilkynningunni og reka upp fagnaðaróp.
Óskaði Guðmundur Árni Stefánsson oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði henni hjartanlega til hamingju.