

„Nú þurfum við að taka okkur á í TikTok-ið, af því þú veist að unga fólkið sem er á TikTok-ið það elskar okkur,“
segir Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins full af eldmóði við flokksmann sinn Guðmund Inga Þóroddsson oddvita flokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar og formann Afstöðu.
Velta þau upp hugmyndum og stingur Inga upp á að Guðmundur Ingi taki einkennislag hennar, The Best sem Tina Turner gerði ódauðlegt. Eitthvað hefur gleymst að athuga með sönghæfileika Guðmundar Inga þegar hann skráði sig í flokkinn. Að minnsta kosti kann hann ekki textann.
„Hvað dettur þér í hug sem myndi slá í gegn til dæmis á TikTok og allir fara að hlæja að okkur“, spyr Inga. Guðmundur Ingi stingur því upp á að þau skelli sér saman í jiu-jitsu.
„Ertu ekki í lagi með þig? Veistu ekki hvað mér er illt í hnénu? Gleymdu hugmyndinni, ég fer ekki í jiu jitsu, ekki fyrir málstaðinn, ekki fyrir neitt. “
Guðmundur Ingi fór því einn og árangurinn má sjá í myndbandinu. „Ég hlýt að lifa þetta af.“
Í nýjasta myndbandinu hrósar Inga Guðmundi Inga fyrir útlitið, en hann segist hafa lagt af í kosningabaráttunni.
Það þýðir bara að koma í baráttu með Flokki fólksins, þá bara rennur maður og verður eins og kókflaska, segir Inga hlæjandi. En þú vilt náttúrulega ekki vera eins og kókflaska. Það er ég sem er, allt í lagi við verðum bara bæði kókflaska.
Guðmundur Ingi segir frekar vera eins og Pepsi Max.