

Ming Ting Mancel var þann 27. apríl ákærð fyrir manndráp á þrítugri dóttur sinni í samverknaði við eiginmann sinn, en hún er ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti eiginmanns síns, Emerics Mancel, en bæði dóttirin og eiginmaðurinn fundust látin á Edition-hótelinu þann 14. júní á síðasta ári. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag en þinghald er lokað.
Samkvæmt ákærunni í málinu er Ming sökuð um að hafa banað dóttur sinni í félagi við eiginmann sinn með því að halda dótturinni fastri, m.a. með því að grípa um hægri upphandlegg hennar, brugðið snöru um háls hennar og í drjúga stund þrengt að öndunarvegi hennar, þannig að hún hlaut urmul punktblæðinga í andliti og á hálsi, auk bráðs yfirþans á lungum, og jafnframt stungið dótturina tveimur stungum með hnífi í brjóstkassann, þar sem önnur stungan gekk inn í hjarta hennar. Lést dóttirin síðar vegna lungnaþembu og rofs á hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans.
Héraðssaksóknari fer fram á að Ming verði dæmd til refsingar og að henni verði gert að greiða allan sakarkostnað.
Málið sem hér um ræðir þykir fordæmalaust í íslenskri réttarsögu og hefur rannsókn lögreglu teygt sig til fjölda landa. Fjölskyldan var hér stödd í ferðalagi en að sögn Ming höfðu þau gert með sér samkomulag um að deyja á Edition-hótelinu. Emeric hafi verið veikur og hafi dóttirin ekki viljað vera ein eftir án foreldra sinna. Af Linkedin-síðu dótturinnar, Catherine, má ráða að hún hafi verið í atvinnuleit þegar hún lést, en samkvæmt RÚV grunar lögreglu að dóttirin hafi mögulega glímt við einhvers konar skerðingu eða mótast af mikilli einangrun.
Sjá einnig: Ming Ting Mancel ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu