

Miðflokkurinn í Kópavogi hefur birt myndband þar sem sagt er að flokkurinn vilji láta taka alla aðra fána en íslenska fánann niður við skóla í bæjarfélaginu. Í myndbandinu má sjá oddvita framboðsins, Einar Jóhannes Guðnason, standa við Smáraskóla og benda á regnbogafánann sem þar blaktir við hún.
„Ef þú vilt frekar sjá íslenska fánann við skóla í Kópavogi settu þá like á þetta vídjó og kjóstu Miðflokkinn 16. maí,“ segir í myndbandinu sem framboðið birti á samfélagsmiðlum. „Við í Miðflokknum viljum að það sé stefna í Kópavogi að einungis íslenski fáninn sem að flaggi við stofnanir. Þetta þarf ekki að vera flókið. Burt með vókið.“
Ekki er langt síðan að Snorri Másson, varaformaður flokksins, réðst að regnbogafánum í skólum. Fékk hann mjög harða gagnrýni fyrir á samfélagsmiðlum.
Stutt er í sveitarstjórnarkosningar og sum framboð Miðflokksins reyndu að skilja sig frá orðum Snorra. Til að mynda framboð flokksins í Hornafirði og Norðurþingi. Hins vegar var Snorri ekki gagnrýndur með berum orðum og bentu margir á að þetta hefði því holan hljóm.
Nú hefur Snorri hins vegar fengið stuðning á sveitarstjórnarstiginu. Það er að Miðflokkurinn í Kópavogi vill láta taka niður alla regnbogafána við skóla í sveitarfélaginu.