fbpx
Fimmtudagur 07.maí 2026
Fréttir

Erfið nýársnótt á höfuðborgarsvæðinu – Hnífsstunga, eldar, flugeldaslys og ölvun

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 1. janúar 2026 08:25

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nóg var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á gamlárskvöld og nýársnótt. Fram kemur í tilkynningu að meðal annars hafi maður orðið fyrir hnífsstungu, og mikið hafi verið um flugeldaslys, elda af völdum flugelda og ofurölvi einstaklinga.

Mest var að gera hjá lögreglustöð 1 sem sér um löggæslu í miðbæ, vesturbæ og austurbæ Reykjavíkur auk Seltjarnarness.

Verkefna sem getið er sérstaklega er að einn aðili var handtekinn grunaður um eignaspjöll líkamsárás og vörslu fíkniefna og varvistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Tilkynnt var um ölvunarakstur, ökumaður var stöðvaður og reyndist í lagi. Tilkynnt var um eld í einbýlishúsi, verið er að gera húsið upp og því enginn inni er eldurinn kom upp.

Erlendur aðili var handtekinn eftir að hafa hlaupið frá lögreglu, aðilinn reyndist eftirlýstur og til stendur að flytja hann úr landi. Aðili var handtekinn fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar, laus eftir samtal við lögreglu í hverju brotið nákvæmlega fóls kemur ekki fram. Aðili í miðbænum er grunaður um að hafa stungið annan mann með hníf. Árásaraðilinn var handtekinn á vettvangi og sjúkralið kom á vettvang og hlúði að árásarþola sem reyndist ekki í lífshættu. Árásaraðili var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.

Ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Lögreglan náði að stöðva hann að lokum og reyndist hann sviptur ökuréttindum. Ökumaður var stöðvaður fyrir grun um ölvun við akstur og einnig grunaður um vera undir áhrifum vímuefna. Loks fékk lögreglustöð 1 tilkynningu um umferðarslys þar sem ökumaður hljóp frá vettvangi. Ökumaður sem olli umferðarslysinu fannst og var grunaður um ölvun við akstur og var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins eftir blóðsýnatöku.

Enginn eldur

Lögreglustöð 2 sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ þurfti aðallega að sinna ökumönnum sem reyndust ölvaðir og það sama á við um lögreglustöð 3 sem sinnir löggæslu í Kópavogi og Breiðholti. Síðarnefnda stöðin þurfti einnig að sinna útkalli þar sem tilkynnt var um eldsvoða en það reyndist vera kertaljós.

Lögreglustöð 4, sem sér um löggæslu í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi, þurfti hins vegar að sinna raunverulegum eldsvoða. Tilkynnt var um eld í gróðri, slökkvilið náði að slökkva eldinn sem kom til vegna þess að búið var að kveikja í úrskotnum flugeldatertum á vettvangi. Skráningarmerki voru fjarlægð af tveimur bifreiðum vegna aðalskoðunar og loks var tilkynnt um innbrot í flugeldasölu en hvort einhverju var stolið kemur ekki fram.

Um heildarmyndia af gamlárskvöldi og nýársnótt á höfuðborgarsvæðinu segir í tilkynningu lögreglu að 6 manns hafi verið vistaðir í fangageymslu. Fjöldi mála á skrá hjá lögreglu sé 78 og því er ekki allra mála getið sérstaklega í tilkynningunni. Segir að lokum að heilt yfir hafi mikið verið tilkynnt um slys vegna flugelda, hávaða vegna samkvæma, ofurölvi einstaklinga og elda í gróðri eða húsum. Þá hafi einnig  verið mikið um ólæti í miðbæ Reykjavíkur,

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“

Helga varð fyrir vonbrigðum með Ásdísi – „Nýta atkvæðið til að fella meirihlutann og koma í veg fyrir að bæjarstjóri Sjálfstæðisflokksins haldi áfram“
Fréttir
Í gær

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm

Kona sem sofnaði undir stýri á Suðurlandsvegi og olli alvarlegu slysi dregin fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni

Eins og atriði í hryllingsmynd – Sáu óðan mann með hníf í Ring myndavélinni
Fréttir
Í gær

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð

Frönskum kjarnorkuvopnum gæti verið komið fyrir í Svíþjóð