fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
Fréttir

Félagarnir af Kjarnanum sameinast hjá Samfylkingunni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 4. febrúar 2025 11:06

Þórður Snær Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Þór Ingólfsson, verðlaunablaðamaður af Heimildinni, hefur hafið störf sem starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar samkvæmt vefsíðu Alþingis. Þar hittir Arnar Þór fyrir náinn samstarfsmann sinn, Þórð Snæ Júlíusson, sem nýlega tók við sem framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar.

Arnar Þór, sem er stjórnmálafræðingur að mennt, var ráðinn til netmiðilsins Kjarnans árið 2020 sem Þórður Snær ritstýrði og stofnaði ásamt viðskiptafélögum sínum. Kjarninn sameinaðist svo Stundinni, svo úr varð Heimildin, í árslok 2022 og þar starfaði Arnar Þór fram að vistaskiptunum yfir í pólitíkina.

Þórður Snær ritstýrði Heimildinni til fram til júlíloka á síðasta ári eftir harða valdabaráttu í yfirstjórn miðilsins. Skellti hann sér svo í framboð fyrir Samfylkinguna en í miðri kosningabaráttu komu rætin skrif hans á gamla bloggsíðu upp á yfirborðið og urðu þau til þess að hann lýsti því yfir að hann hyggðist ekki taka þingsæti ef hann myndi ná kjöri. Það gekk eftir en þess í stað var Þórður Snær ráðinn í áðurnefnda framkvæmdastjórastöðu hjá stjórnmálaflokknum.

Þórður Snær og Arnar Þór voru í hópi fimm blaðamanna sem fengu réttarstöðu sakborning í síma- og byrlunarmálinu. Rannsókn málsins stóð yfir um þriggja ára skeið en var felld niður í byrjun október á síðasta ár.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“

Úthúða Ara og vara Reykvíkinga við því að kjósa Miðflokkinn – „Hefur sýnt konum kvenfyrirlitningu bara frá því ég kynntist honum fyrst“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur

Kona í Vestmannaeyjum sökuð um kynferðislega áreitni við sjö konur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“

Ebba segist hafa bent á leiðir til að spara í rekstri LSH – „Kurteislega bent á að það væri líklega bara best að þegja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“

Furðar sig á viðbrögðum frambjóðenda við ábendingu – „Sjálfstæðisflokkurinn eins og hann leggur sig er hlaupinn í felur“