fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Hanna Katrín lýsir leiðinlegri upplifun fjölskyldu úr Grafarvogi á Snæfellsnesi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. ágúst 2025 10:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var leiðinleg sending sem fjölskylda úr Grafarvogi fékk í kjölfar frábærrar dagsferðar um Snæfellsnes,” segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra í færslu á Facebook-síðu sinni.

Í færslunni segir hún að sendingin hafi verið í formi rukkunar upp á 5.750 krónur af því að þau stoppuðu stutta stund við Kirkjufell.

„Grunngjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sólarhrings bættist við 4.500 króna vangreiðsluálag og 250 króna færslugjald,“ segir hún.

Hanna Katrín bætir við að enginn í fjölskyldunni hafði tekið eftir neinum skýrum merkjum um gjaldskyldu – né leiðbeiningum um hvernig greiða skyldi.

„Þetta er ekki einsdæmi. Kvartanir vegna svipaðra mála berast bæði Neytendastofu og Neytendasamtökunum nánast vikulega, þar sem fólk lýsir óljósri, ósýnilegri eða villandi gjaldtöku sem kemur fram löngu eftir að ferðinni er lokið.“

Hanna Katrín dregur ekki fjöður yfir það að það sé dýrt að byggja upp og reka bílastæði. Þess vegna ekki ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum.

„En ef fólk fær ekki skýrar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála, þá hættir gjaldtakan að vera sanngjörn og jafnvel lögleg.“

Hanna Katrín rifjar svo upp að Neytendastofa hafi í kjölfar kvartana skoðað viðskiptahætti nokkurra bílastæðafyrirtækja. Í ljós hafi komið dæmi þar sem leiðbeiningar um greiðslu eru óskýrar eða ófullnægjandi og aukagjöld ekki kynnt fyrir fram.

„Upplýsingagjöf á reikningum í heimabanka er líka oft mjög ábótavant. Því hefur nú verið beint til viðkomandi fyrirtækja að lagfæra upplýsingagjöf og samræma gjaldtökuna við lög. Stjórnvöld munu fylgja því fast eftir að þessar úrbætur nái fram að ganga. Ef lögin eru óskýr þá verður það lagfært. Almenningur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“

Sakfelldur fyrir hatursorðræðu eftir kæru frá Solaris – „Þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“
Fréttir
Í gær

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“